Leit að Madeleine McCann, sem hvarf fyrir 18 árum í Portúgal, var hætt í gær. Leitin hófst á þriðjudag og leitað var í þrjá daga við ströndina við Algarve. Rannsóknarlögreglumenn sem stýrðu rannsókninni hafa ekki gefið upp hvort þeir hafi fundið nýjar vísbendingar sem tengjast hvarfi stúlkunnar.
McCann var í fríi með foreldrum sínum í Algarve þegar hún hvarf. Var hún þriggja ára gömul. Ítrekað hefur verið leitað að McCann í gegnum árin enda vakti hvarf hennar heimsathygli. Alls leituðu 25 þýskir lögreglumenn hennar í vikunni, og fóru yfir ströndina við Praia da Luz-hótelið, þaðan sem stúlkan hvarf 3. maí árið 2007.
Síðast var leitað að McCann í grennd við vatn nálægt hótelinu árið 2023. Sú leit skilaði engum vísbendingum.