Trump Tilskipunin um ferðabann nær til ríkisborgara frá tólf ríkjum.
Trump Tilskipunin um ferðabann nær til ríkisborgara frá tólf ríkjum. — AFP/Roberto Schmidt
Donald Trump Bandaríkjaforseti tilkynnti í fyrrakvöld að hann hygðist setja bann á ferðalög ríkisborgara tólf ríkja til Bandaríkjanna. Samkvæmt forsetatilskipun mun bannið taka gildi á mánudaginn og ná yfir fólk frá Afganistan, Búrma, Erítreu,…

Stefán Gunnar Sveinsson

sgs@mbl.is

Donald Trump Bandaríkjaforseti tilkynnti í fyrrakvöld að hann hygðist setja bann á ferðalög ríkisborgara tólf ríkja til Bandaríkjanna. Samkvæmt forsetatilskipun mun bannið taka gildi á mánudaginn og ná yfir fólk frá Afganistan, Búrma, Erítreu, Haítí, Íran, Jemen, Lýðveldinu Kongó, Líbíu, Miðbaugs-Gíneu, Sómalíu, Súdan og Tsjad.

Þá hyggst Trump einnig takmarka ferðalög frá sjö ríkjum til viðbótar, Búrúndí, Kúbu, Laos, Síerra Leóne, Tógó, Túrkmenistan og Venesúela. Ríkisborgarar þeirra ríkja geta áfram fengið tímabundin atvinnuleyfi í Bandaríkjunum en ekki varanlegt dvalarleyfi eða ferðamannaáritun.

Trump sagði í yfirlýsingu á samfélagsmiðlum sínum að hryðjuverkið í Boulder í Colorado-ríki, þar sem maður frá Egyptalandi réðst á mótmæli gyðinga í borginni með eldvörpu og mólotoff-kokteilum, sýndi að mikil hætta steðjaði að Bandaríkjunum með því að leyfa inngöngu erlendra ríkisborgara sem ekki væri búið að kanna bakgrunninn hjá. „Við viljum þá ekki,“ sagði Trump.

Nær ekki til íþróttamanna

Ferðabannið mun ekki ná til þeirra íþróttamanna sem eiga að keppa á heimsmeistaramótinu í knattspyrnu karla sem á að fara fram á næsta ári í Bandaríkjunum, Mexíkó og Kanada. Þá verða þeir íþróttamenn sem fara á Ólympíuleikana í Los Angeles 2028 einnig undanskildir ferðabanninu. Bannið nær heldur ekki til fólks sem þegar er með gilt landvistarleyfi í Bandaríkjunum, græna kortið svonefnda, og þá munu þeir Afganir sem aðstoðuðu Bandaríkin í Afganistanstríðinu enn eiga kost á vegabréfsáritun.

Trump greip áður til ferðabanns árið 2017, á fyrra kjörtímabili sínu, en tekist var á um lögmæti þess fyrir dómstólum og var það endanlega numið úr gildi af Joe Biden þegar hann tók við forsetaembætti árið 2021.

Talið er líklegt að hin nýja tilskipun Trumps um ferðabann verði einnig kærð. Þeir lögspekingar sem bandaríska dagblaðið New York Times ræddi við í gær sögðu hins vegar að ólíklegt væri að banninu yrði hnekkt.

Höf.: Stefán Gunnar Sveinsson