Árskóli Nemendur 10. bekkjar sungu nýjan skólasöng við útskriftina.
Árskóli Nemendur 10. bekkjar sungu nýjan skólasöng við útskriftina. — Morgunblaðið/Páll Friðriksson
[ Smellið til að sjá stærri mynd ]
Árskóla á Sauðárkróki var slitið í fyrradag í 27. sinn. Þau tímamót urðu að skólastjóri frá stofnun skólans, Óskar G. Björnsson, sleit skólanum í síðasta sinn en hann hættir sökum aldurs eftir farsælt starf

Páll Friðriksson

Sauðárkróki

Árskóla á Sauðárkróki var slitið í fyrradag í 27. sinn. Þau tímamót urðu að skólastjóri frá stofnun skólans, Óskar G. Björnsson, sleit skólanum í síðasta sinn en hann hættir sökum aldurs eftir farsælt starf.

Árskóli varð til er Barnaskóli og Gagnfræðaskóli Sauðárkróks voru sameinaðir undir eina stjórn á vormánuðum 1998. Óskar á þó lengri skólasögu því nokkur voru árin á undan þar sem hann starfaði sem kennari við skólana, þannig að afskipti hans af menntamálum Sauðkrækinga og nærsveitamanna spannar hátt í hálfa öld.

Í ræðu sinni við skólaslitin sagðist Óskar kveðja skólann með söknuði en jafnframt gleði og stolti í hjarta enda skólinn vel kynntur og framúrskarandi á mörgum sviðum. Nefndi hann einnig að vel væri búið að skólanum þótt enn væri hann ófullgerður og benti m.a. á að enn vantaði aðstöðu fyrir tónlistarnámið sem og samkomusal þar sem hægt væri að halda hina ýmsu viðburði í skólastarfinu.

Óhætt er að segja að Óskar hafi verið vinsæll í sínu starfi, eins og glögglega kom fram í ávörpum samkennara og sveitarstjóra Skagafjarðar, Sigfúsar Inga Sigfússonar, jafnt meðal kennara, foreldra, sveitarstjórnarmanna og ekki síst nemenda. Til vitnis um þetta sagði Óskar frá samtali sem hann átti við unglingsstúlku sem hann mætti eitt sinn á göngum skólans. Spurði hún við hvað hann starfaði annað en að labba um gangana og vera „næs“!

Búið er að ráða eftirmann Óskars, Kristján Bjarna Halldórsson, sem áður gegndi starfi áfangastjóra við Fjölbrautaskóla Norðurlands vestra á Sauðárkróki.

Höf.: Páll Friðriksson