Sýningin Kyrralíf verður opnuð í BERG Contemporary í dag kl. 17. Til sýnis verða verk eftir fjölbreytta listamenn: Dieter Roth, Harald Jónsson, Hákon Bragason, Katrínu Elvarsdóttur, Mörtu Skoczen, Pál Hauk, Rósu Gísladóttur, auk Steinu og Woody Vasulka
Sýningin Kyrralíf verður opnuð í BERG Contemporary í dag kl. 17. Til sýnis verða verk eftir fjölbreytta listamenn: Dieter Roth, Harald Jónsson, Hákon Bragason, Katrínu Elvarsdóttur, Mörtu Skoczen, Pál Hauk, Rósu Gísladóttur, auk Steinu og Woody Vasulka. „Öll eiga þau það sameiginlegt að verk þeirra mætti túlka sem kyrralífsverk, þar sem inntak verkanna kann að fjalla um hversdagsleg viðfangsefni, en eru okkur áminning um fegurð og fallvaltleika lífsins,“ segir í tilkynningu.