Það sauð upp úr í gærkvöldi á milli ríkasta manns heims, Elons Musks, og valdamesta manns heims, Donalds Trumps Bandaríkjaforseta.
Andað hefur köldu á milli þeirra tveggja síðastliðna daga í kjölfar gagnrýni Musks á efnahagsfrumvarp Trumps. Þessar deilur sprungu út með hvelli í gær. Musk sagði meðal annars á samfélagsmiðli sínum X að raunveruleg ástæða þess að skjöl er varða mál Jeffreys Epsteins hefðu ekki verið gerð opinber væri sú að nafn Trumps væri þar að finna.
Trump svaraði um hæl og sagðist verulega ósáttur við gagnrýni Musks. Hann hótaði því að segja upp öllum samningum sem Musk og fyrirtæki hans hafa gert við bandaríska ríkið. Þetta olli því að virði hlutabréfa í Tesla féll um 15%, eða 100 milljarða dala.