Íslenska karlalandsliðið í knattspyrnu mætir Skotum í vináttulandsleik á þjóðarleikvanginum í Glasgow, Hampden Park, í kvöld. Þetta er fyrri leikurinn af tveimur í Bretlandseyjaferð landsliðsins en það mætir Norður-Írum í Belfast á þriðjudagskvöldið
Íslenska karlalandsliðið í knattspyrnu mætir Skotum í vináttulandsleik á þjóðarleikvanginum í Glasgow, Hampden Park, í kvöld. Þetta er fyrri leikurinn af tveimur í Bretlandseyjaferð landsliðsins en það mætir Norður-Írum í Belfast á þriðjudagskvöldið. Leikurinn hefst klukkan 18.45 að íslenskum tíma og verður í beinni textalýsingu á mbl.is en hann er jafnframt sýndur á Stöð 2 Sport þar sem upphitun hefst klukkan 18.20.