Höskuldur Daði Magnússon
hdm@mbl.is
Meirihluti stjórnar Félagsbústaða hefur ákveðið að Sigrún Árnadóttir haldi áfram sem framkvæmdastjóri félagsins og henni hefur verið falið að leiða umbótavinnu sem skila á bættri vinnustaðamenningu og betri stjórnarháttum þar. Þetta var ákveðið á fundi stjórnar Félagsbústaða hinn 22. maí síðastliðinn en fundargerð fundarins var nýverið birt á vef félagsins.
Eins og komið hefur fram í Morgunblaðinu hefur mikill styr staðið um störf Sigrúnar hjá Félagsbústöðum. Í mars sendu almennir starfsmenn borgarstjóra bréf og fóru fram á að stjórn Félagsbústaða sendi framkvæmdastjórann í leyfi. Ekki var orðið við því en þess í stað var leitað til ráðgjafarfyrirtækis í starfsmannamálum til að fara yfir vandamál sem skapast höfðu hjá Félagsbústöðum í kjölfar þess að framkvæmdastjórinn rak starfsmann fyrirvaralaust úr starfi á starfsmannafundi.
Í bréfi starfsmanna kom fram að upplifun þeirra væri að Sigrún framkvæmdastjóri hefði komið fram „með hroka og valsar um í sinni yfirburðastöðu sem framkvæmdastjóri og gerir tilraunir til að endurskrifa söguna sér í vil. Fyrirtækið hefur verið óstarfhæft alla vikuna, starfsfólki hefur liðið mjög illa og ástandið verið skaðlegt heilsu þess. Einn starfsmaður er nú þegar kominn í veikindaleyfi.“
Afgerandi breytinga þörf
Í greinargerð sem lögð var fram á stjórnarfundi Félagsbústaða kemur fram að stjórn hafi fundað fimm sinnum um málið frá því það kom upp í mars og fengið áhættumat frá fyrirtækinu Auðnast. Þar kemur jafnframt fram að starfsfólk Auðnast hafi tekið viðtöl við alla starfsmenn Félagsbústaða. Heimildir Morgunblaðsins herma að þessi viðtöl hafi ekki náð til þeirra starfsmanna sem höfðu hætt eða voru að hætta hjá félaginu. Minnst einn starfsmaður hefur sagt upp störfum eftir að málið kom upp.
„Stjórn Félagsbústaða hefur farið yfir niðurstöður umrædds áhættumats sem eru alvarlegar en af þeim verður ráðið að afgerandi breytinga er þörf varðandi menningu vinnustaðar og stjórnun til að auka vellíðan, öryggi og ánægju starfsmanna. Núverandi framkvæmdastjóri tók við rekstri félagsins á erfiðum tíma þar sem mikilla úrbóta var þörf. Framkvæmdastjóri hefur unnið markvisst að úrbótum en því starfi er ekki lokið,“ sagði í greinargerðinni.
Meirihluti stjórnar leggur áherslu á að mikilvægt sé „að samfella sé í því úrbótastarfi sem blasir við að þurfi að eiga sér stað í starfseminni og treysta framkvæmdastjóra til að leiða það. Ljóst er að af hálfu starfsmanna sem undirrituðu yfirlýsingu um vantraust er ekki til staðar það traust sem þarf að vera í garð framkvæmdastjóra og að því sé mikilvægt að endurvekja það,“ segir þar ennfremur.
Í tillögunni fólst jafnframt að styrkja ætti „utanumhald um mannauðsmál“ með því að ráða inn sérfræðing á því sviði til næstu tveggja ára. Metið verði að tveimur árum liðnum hvort þörf verði á áframhaldandi ráðningu.
Fjórir stjórnarmenn lögðu fram tillöguna og samþykktu hana. Athygli vekur að fimmti stjórnarmaðurinn, Kjartan Magnússon borgarfulltrúi, sat hjá við afgreiðslu málsins.
„Tillaga meirihlutans felur að mestu leyti í sér óbreytt ástand. Ég óttast að tillagan muni ekki skila tilætluðum árangri og gat því ekki stutt hana. Helsta breytingin er sú að yfirmönnum verður fjölgað. Hér er ekki um stóran vinnustað að ræða, innan við þrjátíu manns, og ég held að vandamálið sé ekki að það vanti fleiri yfirmenn,“ segir Kjartan í samtali við Morgunblaðið.
Sigrún Árnadóttir framkvæmdastjóri er ánægð með niðurstöðu málsins og hyggst gera sitt til að bæta stöðuna. „Ég horfi bjartsýn fram á veginn og er fullviss um að við munum ná að vinna með þá þætti sem fram kemur í greiningu Auðnast að skoða þurfi sérstaklega.“