Miðja Í gamla bensínstöðvarhúsinu verða bæði þjónusturými og litlar íbúðir. Torg verður í kringum kuðunginn.
Miðja Í gamla bensínstöðvarhúsinu verða bæði þjónusturými og litlar íbúðir. Torg verður í kringum kuðunginn. — Tölvumynd/Trípólí arkitektar
[ Smellið til að sjá stærri mynd ]
Fasteignafélagið Yrkir hefur lagt fram fyrirspurn til Reykjavíkurborgar um nýtt deiliskipulag fyrir lóðina við Ægisíðu 102 þar sem bensínstöð var rekin um áratugaskeið. Tvær útfærslur eru kynntar í tillögunni en báðar fela í sér að fimm…

Höskuldur Daði Magnússon

hdm@mbl.is

Fasteignafélagið Yrkir hefur lagt fram fyrirspurn til Reykjavíkurborgar um nýtt deiliskipulag fyrir lóðina við Ægisíðu 102 þar sem bensínstöð var rekin um áratugaskeið.

Tvær útfærslur eru kynntar í tillögunni en báðar fela í sér að fimm fjölbýlishúsum verður raðað á lóðarmörkum umhverfis gömlu bensínstöðina. Í kringum bensínstöðina, kuðunginn svokallaða, á að verða til nýtt torg og dvalarsvæði.

Tillaga Trípóli arkitekta bar sigur úr býtum í hugmyndasamkeppni um svæðið en hún hefur nú verið þróuð áfram, meðal annars eftir athugasemdir og ábendingar íbúa í grenndinni. Í upphafi var gert ráð fyrir 32 íbúðum en nú eru þær 38 í annarri tillögunni en 40 í hinni. Upphaflegar hugmyndir um þróun reitsins gerðu ráð fyrir allt að 50 íbúðum.

Athygli vekur að í tillögunni er lagt upp með að litlum íbúðum verði komið fyrir í hluta gömlu bensínstöðvarinnar en áfram er gert ráð fyrir „lifandi starfsemi“ í þeim hlutum hússins sem snúa að Ægisíðu, afgreiðslu bensínstöðvarinnar og fremsta hluta smurstöðvarinnar.

Höf.: Höskuldur Daði Magnússon