Sigurður Bogi Sævarsson
sbs@mbl.is
Jörð á norðanverðu landinu er aftur græn og fuglar syngja eftir hretið sem þar gerði fyrr í vikunni. Aðfaranótt þriðjudags skall á stíf norðanátt svo snjóaði víða upp til fjalla en annars staðar gerði grátt í rót eða rigndi svo aftak var. Því fylgdi skriðuhætta svo sem á Tröllaskaga og í Útkinn en sú vá er nú að mestu um garð gengin samkvæmt því sem Veðurstofan greindi frá í gær.
„Laus jarðlög í fjallshlíðum á Norðurlandi eru þó víða vatnsósa og fylgst verður með aðstæðum í dag meðan úrkoma heldur áfram,“ sagði Veðurstofan. Öryggissveitir voru á vettvangi á meðan hætta varði, svo sem í Ólafsfirði þar sem vatni var dælt af viðsjárverðum stöðum. Þá var bændum hjálpað með að reka fé til byggðar. Engar fréttir hafa borist af fjárskaða.
„Þetta er búið í bili,“ segir Friðbjörn Haukur Guðmundsson, bóndi á Hauksstöðum í Selárdal í Vopnafirði, í samtali við Morgunblaðið. „Á heiðum snjóaði svolítið aðfaranótt þriðjudags og þá um morguninn dró í skafla. Þegar leið svo fram á daginn var þetta horfið. Ég veit heldur ekki til þess að neinn fjárskaði hafi orðið, því snjó var fljótt að taka upp af gróinni jörð. En hitt get ég sagt að hér hefur rignt afar mikið og þá einkum úti við ströndina. Eins var Hofsá í Vopnafirði í miklum vexti svo flæddi yfir bakka hennar.“