Formaður Viðfangsefnin eru og verða endalaus, segir Björn hér í viðtalinu.
Formaður Viðfangsefnin eru og verða endalaus, segir Björn hér í viðtalinu. — Morgunblaðið/Sigurður Bogi
„Við vitum hvar skórinn kreppir og störfum eftir því. Kjara- og húsnæðismál koma til með að verða helstu baráttumál og viðfangsefni á næstu misserum, samanber þá stefnumörkun og ályktanir sem fyrir liggja,“ segir Björn Snæbjörnsson á…

Sigurður Bogi Sævarsson

sbs@mbl.is

„Við vitum hvar skórinn kreppir og störfum eftir því. Kjara- og húsnæðismál koma til með að verða helstu baráttumál og viðfangsefni á næstu misserum, samanber þá stefnumörkun og ályktanir sem fyrir liggja,“ segir Björn Snæbjörnsson á Akureyri sem á dögunum var kjörinn formaður Landssambands eldri borgara (LEB).

„Ég er vongóður um að nú fremur en í annan tíma megi þoka góðum málum áleiðis, samanber að nú er í ýmsu vikið að málefnum eldra fólks í stefnumörkun ríkisstjórnarinnar.“

Björn Snæbjörnsson hefur starfað að félagsmálum frá unglingsaldri og var lengi í forystu verkalýðshreyfingarinnar. Nýlega hættur störfum vegna aldurs hóf Björn þátttöku í starfi eldra fólks í sínum heimabæ. Var þar fyrr en varði kominn í ráð og nefndir. Fór einnig að starfa fyrir LEB. Valdist síðan til formennsku í samtökum 57 aðildarfélaga og tók þar við keflinu af Helga Péturssyni, sem best er þekktur úr Ríó tríóinu.

Sjötugir og eldri fá að greiða áfram í lífeyrissjóð

Byrjum á kjaramálunum eins og um þau var ályktað á landsfundi LEB nýlega. Þar segir að ekki sé sanngjarnt að bilið milli lágmarkstaxta launafólks og grunnlífeyris Tryggingastofnunar hafi aukist svo mikið sem raun ber vitni. Í dag er munurinn 104.822 kr. Slíkt er ekki í lagi segir Björn né heldur að skerðingarmörk vegna lífeyristekna séu aðeins 36.500 kr. Þau hafa hækkað um aðeins 11.500 kr. frá árinu 2017. Einnig er, að mati formannsins, óréttlátt að greiðslur almannatrygginga skerðist ef fólk hefur lágar fjármagnstekjur, samanber frítekjumörk skattalaga. Eðlilegt sé að almennt frítekjumark atvinnutekna hækki en það er í dag 200 þús. kr. á mánuði. Einnig er sjálfsögð krafa að fólk sem er sjötugt og eldra og enn á vinnumarkaði fái að greiða í lífeyrissjóð og afla sér þannig réttinda. Í dag er tekið fyrir slíkt og því segir Björn sjálfsagt að breyta.

„Ég hef stundum sagt að skipta megi eldra fólki í þrjá hópa þegar litið er til afkomu þess. Í þeim fyrsta er fólk sem kemst mjög vel af og hefur það mjög gott. Í öðrum hópnum eru þau sem hafa þokkalega afkomu og þriðji hópurinn hefur það mjög skítt. Eðlilega verður sérstaklega að líta til þeirra síðastnefndu um úrbætur,“ segir Björn. Hann tiltekur í þessu sambandi fólk sem er í leiguhúsnæði og með lágar greiðslur úr lífeyrissjóðum og almannatryggingum.

Þau sem leigja húsnæði og hafa litlar tekjur eru nokkuð stór hópur og stærri en margir halda, segir Björn Snæbjörnsson og heldur áfram: „Raunar vitum við að í dag eru tæplega 5.000 manns á Íslandi sem fá engar greiðslur frá lífeyrissjóðunum. Eru bara með strípaðar bætur Tryggingastofnunar og þær eru 347 þúsund kr. á mánuði. Um 15.000 manns sem eru með tekjur undir lágmarkstaxta 18 ára unglinga sem í dag eru rúmlega 450 þúsund krónur. Með einhverju móti þarf að mæta því fólki og raunar verður heildstætt að vænta þess að réttlæti sé inntakið í öllum samfélagslegum aðgerðum. Umhugsunarvert er til dæmis að þó að fólk eigi eitthvert lítilræði undir koddanum – kannski 1-2 milljónir króna – til þess að eiga fyrir jarðarförinni, eins og sagt er, leiði slíkt af sér skerðingar á greiðslum sem nemur 45 aurum af hverri krónu sem aflað er. Svona er víða klipið af og þeirri fátæktargildru verður að loka,“ segir Björn.

„Einnig teljum við brýnt að hækka frítekjumarkið, bæði það almenna og einnig vegna vinnutekna, samanber ef eldra fólk er eitthvað að vinna, sem skilar einhverjum minniháttar tekjum. Í dag er til almennt frítekjumark en undir það falla greiðslur frá lífeyrissjóðum og einnig fjármagnstekjur. Talan er nú 36.500 kr. en á að fara í 60 þúsund kr. á kjörtímabilinu samkvæmt því sem ríkisstjórnin hefur boðað.“

Fjölgun hjúkrunarrýma er jákvætt skref

Gera þarf stórfellt átak í að byggja ódýrar og hagkvæmar íbúðir, þar með taldar þjónustuíbúðir, fyrir eldra fólk, segir í ályktun LEB. Minnir húsnæðisnefnd þar á að til séu eldri borgarar sem hafi lágar tekjur og eigi ekki annan kost en að vera á leigumarkaði. Mikilvægt er að húsnæðiskostnaður verði aldrei hærri en 25% af ráðstöfunarfé fólks, samanber lög þar að lútandi, en ljóst er að þessi kostnaður er oftar nær 50% og í mörgum tilfellum hærri, allt upp í 75%. Leggja ber því áherslu á óhagnaðardrifin félög við uppbyggingu leiguíbúða.

Í mars síðastliðnum var tilkynnt um samkomulag milli ríkis og sveitarfélaga um uppbyggingu hjúkrunarheimila. Nú er ráðgert að taka í notkun 120 hjúkrunarrými á þessu og næsta ári og að þau verði 600 til og með árinu 2028. Má í þessu sambandi nefna samninga sem gerðir hafa verið um fjölgun rýma á Akureyri, Dalvík, Húsavík, í Reykjavík og Hveragerði og meira er í undirbúningi. Þetta segir Björn að séu jákvæð skref og í samræmi við það sem LEB hafi vænst.

„Þetta er þjóðhagslega hagkvæmt, þannig að eldra fólk þurfi ekki þegar veikindi steðja að teppa dýr rúm á sjúkrahúsum í langan tíma,“ tiltekur Björn.

Árangur með samstöðu

Þegar sleppir beinum aðgerðum stjórnvalda í þágu eldra fólks þarf að líta eftir ýmsu sem viðvíkur félagslegri stöðu þessa hóps, segir Björn. Margir eru í einmanaleika og hafa sig ekki í að sækja þjónustu og félagsstarf sem er í boði.

„Þarna gildir að líta eftir þeim sem eru ein og í erfiðri stöðu. Hvetja þarf viðkomandi til að taka þátt. Svo vitum við líka að ofbeldi gagnvart eldra fólki er vaxandi vandamál; bæði líkamlegt og þó ekki síður andlegt. Í sumum tilvikum getur þetta verið fjárhagsleg kúgun gagnvart þeim sem geta illa varið sig. Þetta er vandamál sem verður að gefa gaum og við ætlum að halda umræðunni vakandi. Viðfangsefnin í þágu okkar hóps eru og verða endalaus. Slíkt þekki ég úr fyrri störfum í verkalýðshreyfingunni; alltaf strögl en oftast næst einhver árangur ef samstaða fjöldans er fyrir hendi,“ segir formaður LEB.

Höf.: Sigurður Bogi Sævarsson