Unnar Stefánsson, viðskiptafræðingur og fv. ritstjóri og varaþingmaður, lést á Landspítalanum í Fossvogi 3. júní, 91 árs að aldri. Unnar fæddist í Neskaupstað 20. apríl 1934 en ólst upp í Hveragerði

Unnar Stefánsson, viðskiptafræðingur og fv. ritstjóri og varaþingmaður, lést á Landspítalanum í Fossvogi 3. júní, 91 árs að aldri.

Unnar fæddist í Neskaupstað 20. apríl 1934 en ólst upp í Hveragerði. Foreldrar hans voru Stefán Jóhann Guðmundsson, byggingameistari og hreppstjóri í Hveragerði, og Elín Guðjónsdóttir húsmóðir.

Unnar lauk stúdentsprófi frá Menntaskólanum að Laugarvatni 1954, í fyrsta útskriftarárgangi skólans, og viðskiptafræðiprófi frá Háskóla Íslands 1959. Hann var blaðamaður á Alþýðublaðinu samhliða námi en hóf störf hjá Sambandi íslenskra sveitarfélaga árið 1959. Var deildarstjóri Lánasjóðs sveitarfélaga og frá 1968 til starfsloka 2004 ritstýrði hann tímariti sambandsins, Sveitarstjórnarmálum. Auk þess ritstýrði hann Sunnlendingi og fjölda handbóka og fræðslurita.

Á háskólaárum sínum sat Unnar í Stúdentaráði, var formaður Stúdentakórsins og í stjórn Sambands ungra jafnaðarmanna og sömuleiðis Varðbergs, félags áhugamanna um vestræna samvinnu. Hann sinnti ýmsum trúnaðarstörfum fyrir Alþýðuflokkinn og sat nokkrum sinnum á þingi sem varaþingmaður Suðurlands árin 1959-1970. Á þeim árum tók hann sæti á Allsherjarþingi Sameinuðu þjóðanna og sat fundi Sveitar- og héraðsstjórnaþings Evrópuráðsins.

Unnar var lengi starfsmaður Bjargráðasjóðs og átti sæti í fjölda nefnda og ráða. Má þar nefna nefnd um sameiningu sveitarfélaga, Umferðarráð, Æskulýðsráð, Leiklistarráð, Listskreytingasjóð, undirbúningsnefnd að stofnun Öldrunarráðs Íslands og vinabæjanefnd Norræna félagsins. Hann lét til sín taka á vettvangi sundíþróttarinnar, var í stjórn Sundfélagsins Ægis og varaformaður Sundsambands Íslands 1983-1985. Þá átti hann lengi sæti í stjórn Árnesingafélagsins í Reykjavík.

Eftirlifandi eiginkona Unnars er María Ólafsdóttir prófarkalesari, f. 1939. Börn þeirra eru Kristján Már, fréttamaður, f. 1959, Stefán Örn, framkvæmdastjóri, f. 1960, og Elín Björk, framhaldsskólakennari, f. 1963. Barnabörnin eru 11 og langafabörnin 12.