Félag íslenskra bifreiðaeigenda (FÍB) hefur sent kvörtun til Samkeppniseftirlitsins vegna fréttar í Viðskiptamogganum 14. maí síðastliðinn þar sem fjallað var um samantekt Samtaka fyrirtækja í fjármálaþjónustu (SFF) um afkomu vátryggingafélaga.
Í umfjölluninni var rætt við hagfræðing SFF, Gústaf Steingrímsson. FÍB segir Gústaf hafa fullyrt að afkoma af tryggingum væri lökust á Íslandi og að Ísland væri eina Evrópulandið með viðvarandi tap af vátryggingastarfsemi.
FÍB segist hafa kannað afkomu vátrygginga hér á landi og í ljós hafi komið að fullyrðingar hagfræðingsins séu „ýmist rangar eða villandi“, eins og segir í tilkynningu frá FÍB. Tilgangurinn með þeim fullyrðingum hafi verið sá einn „að fá viðskiptavini tryggingafélaganna til að trúa því að ekkert svigrúm sé til að lækka iðgjöld og því skuli þeir ekki sækjast eftir betri kjörum.“
FÍB telur að ummæli Gústafs gangi í berhögg við 12. grein samkeppnislaga, en þar sé samtökum á borð við SFF óheimilt að hvetja til aðgerða sem hafi skaðleg áhrif á samkeppni. Rifjar FÍB upp að í mars 2022 sektaði Samkeppniseftirlitið SFF um 20 milljónir króna fyrir brot á umræddri grein samkeppnislaga.
FÍB segir að afkoma af vátryggingum hafi verið jákvæð síðustu þrjú ár, þar af mjög jákvæð árið 2024.