— Morgunblaðið/Eggert
Leikhópurinn Perlan fagnaði því í gær að leikgerð Bergljótar Arnalds af sögunni um Mjallhvíti og dvergana sjö er komin á Storytel með röddum þeirra. Af því tilefni hélt leikhópurinn blaðamannafund í Borgarleikhúsinu, en þar sýndi hann verkið á Stóra sviðinu í maí 2023

Leikhópurinn Perlan fagnaði því í gær að leikgerð Bergljótar Arnalds af sögunni um Mjallhvíti og dvergana sjö er komin á Storytel með röddum þeirra. Af því tilefni hélt leikhópurinn blaðamannafund í Borgarleikhúsinu, en þar sýndi hann verkið á Stóra sviðinu í maí 2023. Í verkinu segir af vondu drottningunni sem hugsar bara um eigið útlit og vill vera fegurst í heimi. Hún úthýsir öllum sem eru öðruvísi að hennar mati en þegar frá líður uppgötvar hún að manneskjan er ekki bara mæld með málbandi eftir einhverjum fegurðarstöðlum. Gerður Jónsdóttir fer með hlutverk vondu drottningarinnar, góða kónginn leikur Ragnar Ragnarsson og Felix Magnússon leikur prinsinn.