NATO Hegseth og Rutte mæta til fundarins í Brussel í gær.
NATO Hegseth og Rutte mæta til fundarins í Brussel í gær. — AFP/Nicolas Tucat
Varnarmálaráðherra Bandaríkjanna, Pete Hegseth, sagði í gær að bandalagsríki Atlantshafsbandalagsins væru komin mjög nálægt því að samþykkja nýtt markmið um útgjöld til varnarmála, en leiðtogafundur bandalagsins fer fram í Haag í lok júnímánaðar

Varnarmálaráðherra Bandaríkjanna, Pete Hegseth, sagði í gær að bandalagsríki Atlantshafsbandalagsins væru komin mjög nálægt því að samþykkja nýtt markmið um útgjöld til varnarmála, en leiðtogafundur bandalagsins fer fram í Haag í lok júnímánaðar.

Bandaríkjastjórn hefur þrýst mjög á bandalagsríkin að hækka núverandi markmið, sem er 2% af vergri landsframleiðslu (VLF), þannig að útgjöld til varnarmála verði 5% af VLF hið minnsta.

Varnarmálaráðherrar bandalagsríkjanna funduðu í gær í Brussel, og sagðist Hegseth eftir fundinn telja að flest ríkin væru tilbúin til þess að samþykkja 5% af VLF sem nýtt markmið, en þar af yrðu 3,5% bein útgjöld til varnarmála, en 1,5% yrðu fjárfesting í innviðum, sem einnig geta nýst til varna ríkjanna. „Sú blanda felur í sér alvöru skuldbindingu og við teljum að öll ríkin geti stigið upp,“ sagði Hegseth.

Tillagan um 3,5+1,5 er komin frá Mark Rutte, framkvæmdastjóra bandalagsins, en hún felur í sér að bandalagsríkin muni verja að minnsta kosti 3,5% af VLF til varnarmála fyrir árið 2032.

Að sögn heimildarmanna AFP-fréttastofunnar var Rutte langt kominn með að fá samþykki allra aðildarríkjanna fyrir hinu nýja markmiði. Sögðu sömu heimildarmenn að Spánverjar hefðu verið með hæstu efasemdaraddirnar, en þeir munu fyrst ná 2% markmiðinu, sem upphaflega var sett árið 2014, í lok þessa árs.

Varnarmálaráðherra Spánar, Margarita Robles, tók hins vegar skýrt fram í gær að spænsk stjórnvöld myndu ekki beita neitunarvaldi á hið nýja markmið, jafnvel þótt þau væru ósammála því að setja „fasta prósentu“ á varnarútgjöldin.