Diljá Valdimarsdóttir
dilja@mbl.is
Stærsta utanvegahlaup landsins, Hengill Ultra, fer fram í Hveragerði um helgina og er þetta í 13. sinn sem hlaupið er haldið.
Í hlaupinu koma saman byrjendur og öflugustu utanvegahlauparar landsins auk keppenda frá 27 löndum. Hlauparar munu spreyta sig á vegalengdum frá 5 kílómetrum og upp í 106 kílómetra og áætlað er að um 1.200 hlauparar taki þátt í hlaupinu í ár.
Ræst verður klukkan sex í kvöld, en þá hlaupa 24 keppendur 106 km leið um Hengilssvæðið. Í fyrramálið leggja 109 hlauparar af stað í 53 km og í framhaldinu verða hinar vegalengdirnar ræstar.
Athygli vekur að danska landsliðið í utanvegahlaupum sendir sterka sveit kvenna til þátttöku. Þetta er í annað sinn sem Danir senda bestu hlaupara sína til þátttöku.
Brautin er í mjög góðu ástandi
Undirbúningur hefur gengið afar vel, að sögn Þóris Erlingssonar forseta mótsstjórnar. Margir koma að undirbúningi og gekk hópur fólks um lengstu leiðina í síðustu viku. Þórir segir brautina í afar góðu standi og ekki sé búist við að hún verði jafn blaut og í rigningum síðustu ára. Flestir hlauparar sem hafa farið um Hengilssvæðið þekkja frægan snjóskafl sem hverfur sjaldnast yfir sumartímann en Þórir segir hann vera talsvert minni en síðastliðin ár.
Undirbúningur er langur og þeir sem hlaupa lengstu leiðirnar hafa flestir æft sig í marga mánuði. „Þetta snýst um að fara á eigin forsendum og þetta snýst ekki endilega um að vinna hlaupið, heldur að sigra sjálfan sig,“ segir Þórir.
Veðurstofa Íslands spáir ágætu veðri á laugardaginn og vona stjórnendur hlaupsins að veðurguðirnir verði með þeim í liði. Þórir segir undirbúning miðast við að veðrið geti verið slæmt. Fyrir hefur komið fyrir að hlaupinu sé frestað um einn eða tvo daga vegna veðurs. „Veðrið hefur gríðarleg áhrif og við viljum ekki senda hlaupara af stað í slagviðri,“ segir Þórir.
Fjölbreytt dagskrá
Heilmikil dagskrá er fram undan í Hveragerði um helgina og lýsir Þórir hlaupinu sem „einni allsherjar hlaupahátíð“. Dagskráin er fyrir alla, hvort sem þeir hlaupa eða ekki. Sölusýning á varningi tengdum utanvegahlaupum verður í íþróttahúsinu í Hveragerði. Götugrill í umsjón Fannars Geirs Ólafssonar matreiðslumeistara verður við endamarkið þar sem gestir og gangandi geta fengið sér ljúffengar kræsingar. Hljómsveitin Skítamórall mætir á svæðið upp úr hádegi og einnig munu plötusnúðar halda uppi stuðinu allan daginn. Dagskránni lýkur um kvöldið í Íþróttahúsinu í Hveragerði þar sem Helgi Björns, Klara Einars, Patrik Atlason og fleiri skemmta hlaupurum og öðrum gestum.
Enn er hægt að skrá sig í 5 km, 10 km og 26 km og fer skráning fram á vefsíðu Hengils Ultra.