Sviss Isabelle og Stefan laða Svisslendinga hingað til landsins.
Sviss Isabelle og Stefan laða Svisslendinga hingað til landsins. — Morgunblaðið/Ásdís
Svisslendingarnir Isabelle og Stefan Felix fluttu til Íslands fyrir þremur árum og opnuðu Hengifosslodge, en þar taka þau á móti ferðamönnum og eru alsæl á Íslandi. Í heimalandinu eru þau orðin þjóðþekkt vegna sjónvarpsþáttar og nú streyma Svisslendingar til Austurlands

Svisslendingarnir Isabelle og Stefan Felix fluttu til Íslands fyrir þremur árum og opnuðu Hengifosslodge, en þar taka þau á móti ferðamönnum og eru alsæl á Íslandi. Í heimalandinu eru þau orðin þjóðþekkt vegna sjónvarpsþáttar og nú streyma Svisslendingar til Austurlands.

„Í Sviss er sjónvarpsþáttur, mjög vinsæll og frægur, þar sem fólki sem er að flytja til nýrra landa er fylgt eftir. Við vorum valin í þáttinn og kvikmynduð við flutningana milli landanna og síðan komu þau hingað fimm sinnum til að fylgjast með lífi okkar hér. Þessir þættir eru sýndir á besta tíma og um tvær milljónir manna horfa,“ segir Isabelle. Þetta var í fyrsta sinn sem fylgst var með fólki flytja til Íslands, en þátturinn með Isabelle og Stefan er einn sá vinsælasti frá upphafi, enda segja þau Ísland mjög vinsælt meðal Svisslendinga. Hjónin segja frá lífi sínu á Íslandi í viðtali í Sunnudagsblaði Morgunblaðsins.