Laxeldisfélagið Kaldvík AS hefur lokið við alls 40 milljarða króna endurfjármögnun sem felur í sér nýja lánsfjármögnun og hlutafjáraukningu. Markmið endurfjármögnunarinnar er að styrkja fjárhagsstöðu félagsins og styðja við áframhaldandi vöxt og fjárfestingar. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Kaldvík.
„Við náðum samkomulagi við lánveitendur okkar í lok maí, sem tryggði félaginu ríflega 33 milljarða króna lánsfjármögnun til fjögurra ára. Lánsfjármögnunin er í formi sambankaláns sem fjórir bankar koma að, DNB, Nordea, Arion banki og Landsbankinn,“ segir Róbert Róbertsson fjármálastjóri Kaldvíkur í tilkynningunni.
Kaldvík vann að aukningu hlutafjár félagsins samhliða endurfjármögnuninni sem tryggði félaginu 6,6 milljarða króna. Hlutafjáraukningin naut stuðnings frá meirihlutaeiganda félagsins, Austur Holding AS.