Björn Diljan Hálfdanarson
bdhmbl.is
Aukin útgjöld til varnarmála í þágu sameiginlegra varna, áframhaldandi stuðningur við varnarbaráttu Úkraínu og undirbúningur fyrir leiðtogafund NATO sem fram fer í Haag dagana 24.-25. júní voru megináherslur á fundi varnarmálaráðherra Atlantshafsbandalagsins.
Fundinum lauk í höfuðstöðvum bandalagsins í Brussel í fyrradag. Fundað var í Atlantshafsráðinu meðal bandalagsríkja og í NATO-Úkraínuráðinu með þátttöku varnarmálaráðherra Úkraínu og utanríkismálastjóra ESB. Einnig komu ráðherrar saman til að ræða kjarnavopnafælingu bandalagsins, sem er meðal lykilþátta í fælingarstefnu þess. Fastafulltrúi Íslands hjá Atlantshafsbandalaginu tók þátt í fundinum fyrir Íslands hönd.
Á fundinum í Brussel voru síðustu skrefin tekin í undirbúningi fyrir leiðtogafundinn í Haag. Tekið var á helstu málum, meðal annars auknum framlögum til varnarmála til að mæta vaxandi skuldbindingum og styrkja sameiginlegar varnir bandalagsins. Áframhaldandi stuðningur við Úkraínu, ógnin frá Rússlandi og friðarumleitanir Bandaríkjanna voru einnig rædd.
Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra segir í tilkynningu að fundurinn í Haag verði um margt sögulegur. „Umhverfi öryggis- og varnarmála hefur tekið stakkaskiptum á umliðnum árum og bandalagið aðlagað sig breyttum veruleika. Rússland verður ógn í bráð og lengd, og stuðningur við varnarbaráttu Úkraínu er jafnframt okkar fyrsta varnarlína, fyrir okkar gildum og alþjóðalögum.“