Laxveiði Ekkert samtal hefur átt sér stað eftir úrskurð Fiskistofu.
Laxveiði Ekkert samtal hefur átt sér stað eftir úrskurð Fiskistofu. — Morgunblaðið/Einar Falur
Stangaveiðifélag Reykjavíkur mun annast urriðasvæði í Laxá í S-Þingeyjarsýslu það sem eftir lifir árs að sögn formanns. Eins og fram kom í Morgunblaðinu í vikunni hefur Fiskistofa ógilt ákvörðun félagsfundar Veiðifélags Laxár og Krákár um að…

Björn Diljan Hálfdanarson

bdh@mbl.is

Stangaveiðifélag Reykjavíkur mun annast urriðasvæði í Laxá í S-Þingeyjarsýslu það sem eftir lifir árs að sögn formanns.

Eins og fram kom í Morgunblaðinu í vikunni hefur Fiskistofa ógilt ákvörðun félagsfundar Veiðifélags Laxár og Krákár um að samþykkja tilboð Stangaveiðifélags Reykjavíkur í veiðisvæðin. Ragnheiður Thorsteinsson, formaður Stangaveiðifélags Reykjavíkur, segir í samtali við Morgunblaðið að framhaldið sé óljóst.

Leigutakar út þetta ár

„Það er bara í höndunum á Veiðifélaginu fyrir norðan. Nú hljóta þau að ráða ráðum sínum og ákveða næstu skref, sem við höfum enga aðkomu að nema bara að við erum leigutakar út 2025,“ segir Ragnheiður og bætir við að ekkert formlegt samtal hafi átt sér stað eftir úrskurð Fiskistofu.

Vilja halda áfram

„Við höfum verið með svæðið í 16 ár og höfum gefið út viljayfirlýsingu um að við viljum gjarnan halda samstarfi okkar áfram og við höfum gert mjög vel við þessi svæði. Þetta eru það vinsæl svæði hjá okkur að menn hafa bundið sérstöku ástfóstri við þau, svo að það er vel skiljanlegt ef fólk er óöruggt,“ bætir Ragnheiður við í lokin.

Höf.: Björn Diljan Hálfdanarson