Búið er að festa sprengjur á þessa dróna og stafar af þeim mikil ógn.
Búið er að festa sprengjur á þessa dróna og stafar af þeim mikil ógn. — AFP
Hersveitir Úkraínu gerðu í fyrrinótt árásir á tvo herflugvelli inni í rússnesku landi. Er um að ræða flugvellina Engels í hérað­inu Saratov og Dyagilevo nærri Moskvu. Báðir þessir flugvellir eru í hundraða kílómetra fjarlægð frá landamærum Úkraínu

Hersveitir Úkraínu gerðu í fyrrinótt árásir á tvo herflugvelli inni í rússnesku landi. Er um að ræða flugvellina Engels í hérað­inu Saratov og Dyagilevo nærri Moskvu. Báðir þessir flugvellir eru í hundraða kílómetra fjarlægð frá landamærum Úkraínu.

Skotmörk Úkraínuhers voru eldsneytis-, vopna- og birgðageymslur á flugvöllunum en rússnesk stjórnvöld segja árásardróna hins vegar hafa hæft íbúðabyggð, meðal annars fjölmennt háhýsi. Myndir hafa birst af umræddu háhýsi sem sýna staðbundinn eld ofarlega í byggingunni. Manntjón er talið vera í lágmarki.

Rússneskar hersveitir gerðu einnig árásir á skotmörk í Úkraínu, hæfðu meðal annars hernaðarlega mikilvæg skotmörk en þó einnig íbúðabyggð í Kænugarði. Minnst þrír eru sagðir látnir.

Beittu þeir langdrægum eldflaugum, stýriflaugum og árásardrónum í aðgerðinni. Moskvuvaldið hefur boðað enn harðari árásir á næstunni.