Birkir Jón Jónsson
Birkir Jón Jónsson
[ Smellið til að sjá stærri mynd ]
Íslenska landsliðið í opnum flokki í bridds er í þriðja sæti á NM í bridge þegar fjórum umferðum er lokið af tíu. Svíar leiða sjö stigum ofar en Danir eru í öðru sæti. „Það er mjög mjótt á mununum og allt getur gerst,“ segir Matthías Imsland, framkvæmdastjóri Bridgesambands Íslands

Íslenska landsliðið í opnum flokki í bridds er í þriðja sæti á NM í bridge þegar fjórum umferðum er lokið af tíu. Svíar leiða sjö stigum ofar en Danir eru í öðru sæti.

„Það er mjög mjótt á mununum og allt getur gerst,“ segir Matthías Imsland, framkvæmdastjóri Bridgesambands Íslands.

Mótið fer fram á Laugarvatni en klukkan 9.30 í dag fer fram lykilviðureign þegar Ísland mætir toppliðinu, Svíum.

Kvennalandsliði Íslands hefur ekki gengið vel á mótinu en Noregur er á toppnum í kvennaflokknum.

Fjórir leikir verða spilaðir í dag í báðum flokkum en úrslitin ráðast á sunnudag að lokinni tvöfaldri umferð.