Leikskóli Börn byrja missnemma.
Leikskóli Börn byrja missnemma. — Morgunblaðið/Eggert
Í Reykjanesbæ hefja flest börn leikskóladvöl 24-29 mánaða gömul en meðalaldurinn er 15 mánaða í Garðabæ. Morgunblaðið hafði samband við stærri sveitarfélög landsins og bað um meðalaldur barna þegar þau hefja dvöl í leikskóla

Hermann Nökkvi Gunnarsson

hng@mbl.is

Í Reykjanesbæ hefja flest börn leikskóladvöl 24-29 mánaða gömul en meðalaldurinn er 15 mánaða í Garðabæ.

Morgunblaðið hafði samband við stærri sveitarfélög landsins og bað um meðalaldur barna þegar þau hefja dvöl í leikskóla. Sex sveitarfélög svöruðu en ekki bárust svör frá Árborg og Reykjavík áður en fréttin var skrifuð.

Ingibjörg Bryndís Hilmarsdóttir, leikskólafulltrúi Reykjanesbæjar, svaraði ekki ítrekuðum fyrirspurnum um það hvort að fyrir lægi nákvæm tala um meðalaldur barna sem hefja leikskóladvöl í sveitarfélaginu. Aftur á móti sagði hún börn hefja dvöl á aldursbilinu 20-29 mánaða, þar af væru flest börn að byrja á aldrinum 24-29 mánaða. Má af því ráða að meðalaldurinn sé hærri en 24 mánaða.

„Þegar þau byrja í leikskóla getur verið allt frá 20 mánaða og upp í 28-29 mánaða, en það má segja að flest börn eru um 2 -2,5 ára,“ segir Ingibjörg í skriflegu svari. Ásta Sigrún Magnúsdóttir, samskiptastjóri Garðabæjar, segir að sveitarfélagið hafi boðið börnum að hefja leikskóladvöl þegar þau séu að ná 12 mánaða aldri, þó að meðalaldur barna þegar þau hefja leikskólagöngu undanfarið ár hafi verið 15 mánuðir. „Undanfarið ár er meðalaldur barna þegar þau hefja leikskólagöngu í Garðabæ 15 mánuðir. Við upphaf dvalar að hausti eru flest þeirra barna 12 mánaða,“ segir hún.

Gunnhildur Arna Gunnarsdóttir, samskiptastjóri Hafnarfjarðar, segir að í haust sé meðalaldur barna sem hefja leikskóladvöl 17,7 mánuðir. Magnea Steinunn Ingimundardóttir, verkefnastjóri hjá Mosfellsbæ, segir að meðalaldur barna í haust sé á bilinu 17-18 mánuðir.

Kristín Jóhannesdóttir, sviðsstjóri fræðslu- og lýðheilsusviðs Akureyrarbæjar, segir meðalaldur barna sem hefja leikskóladvöl á Akureyri vera 19 mánuði. Ásdís Kristjánsdóttir, bæjarstjóri Kópavogs, segir í samtali við Morgunblaðið að öll börn fædd í júní 2024 hafi fengið pláss í haust. Meðalaldurinn sé samt 19,7 mánuðir. „Ef við tökum þau börn sem komust ekki inn í fyrra og voru á biðlista er meðalaldurinn 19,7 mánuðir,“ segir hún. Nánari umfjöllun má nálgast í dag á mbl.is.

Höf.: Hermann Nökkvi Gunnarsson