Sigurður Bogi Sævarsson
sbs@mbl.is
„Okkur þótti góð hugmynd að efna til viðburðar hér þar sem uppistaðan væri ljóð og sögur um skáldið. Nafn Davíðs er alltaf samofið þessum stað,“ segir Stefán Magnússon, bóndi í Fagraskógi við Eyjafjörð. Þar á bæ verður hinn 21. júní næstkomandi haldin menningarstund tileinkuð þjóðskáldinu Davíð Stefánssyni. Tilefnið er að í ár eru liðin 130 ár frá fæðingu skáldsins, því er efnt til þessa viðburðar nærri sumarsólstöðum þegar landið er komið í sumarsins græna skrúð að ætla verður.
Yfirskrift viðburðarins í Fagraskógi er Heima og sá titill segir sitt. „Við segjum Heima vegna þess að Fagriskógur var alltaf heimavöllur Davíðs. Hann hafði alla tíð mjög sterk tengsl við fólkið sitt og Fagraskóg. Hann var mjög upptekinn af því hvernig fólkinu hans gekk og hvað var verið að fást við hverju sinni,“ segir Stefán bóndi sem skipulagt hefur þessa stund með Sigrúnu Jónsdóttur eiginkonu sinni.
Mynd í hugskoti
Dagskráin í Fagraskógi, sem hefst kl. 17 hinn 21. júní, verður einföld en efnisrík. Kristjana Arngrímsdóttir, söngkona á Tjörn í Svarfaðardal, og sonur hennar Örn Eldjárn, tónlistarmaður og gítarleikari, flytja lög við ljóð Davíðs. Einnig les Rakel Hinriksdóttir, skáldkona og blaðamaður á Akureyri, ljóð eftir Davíð sem eru eftirlæti hennar. Valgerður Valgarðsdóttir á Akureyri, lengi djákni við sjúkrahúsið þar í bæ, rifjar upp minningar um Davíð, sem var föðurbróðir hennar. Sama gerir Stefán í Fagraskógi, fer með frásagnir um skáldið sem til eru í munnmælum.
„Til eru margar frásagnir um Davíð sem ég hef heyrt, þá gjarnan frá skyldfólki mínu. Sjálfur var ég aðeins þriggja ára þegar Davíð, sem var afabróðir minn, lést en þó er eins og ég muni óljóst eftir mér á öxl hans þar sem hann hélt á mér. Ég geri mér ekki ljóst hvort þessi mynd í hugskotinu er raunveruleg eða hvort hún hefur orðið til með frásögnum annarra. Slíkt skiptir kannski ekki öllu máli: tilfinningin er aðeins góð,“ segir Stefán.
Tryggð við æskuslóðir
Oft hefur verið efnt til viðburða sem tengjast Davíð Stefánssyni, verkum hans og arfleifð. Nefnir Stefán í Fagraskógi þar tónleika sem kór Möðruvallaprestakalls hélt árið 2009. Fyrir fimm árum gaf Kammerkór Norðurlands út geisladisk þar sem sungin voru ljóð Davíðs. Því var fylgt eftir með tónleikum. Nær í tíma eru ýmsir viðburðir í Davíðshúsi við Bjarkarstíg á Akureyri, húsinu sem Davíð lét byggja og var heimili hans lengi. Hann hélt þó alltaf tryggð við æskuslóðir sínar heima í Fagraskógi og þar heima er skógarlundur og brjóstmynd af skáldinu, sem nú er minnst eins og verðugt er.