Björn Diljan Hálfdanarson
bdh@mbl.is
Áætluð framkvæmd við Hraunfossa og Barnafoss í Hvítá felur í sér gerð fiskvegar í jarðgöngum sem gerir ána laxgenga ofan við fossinn. Framkvæmdin er sú fyrsta sinnar tegundar hér á landi en annað eins má finna víða erlendis, meðal annars í Noregi.
Fyrirtækið Rati ehf. stendur fyrir verkefninu í samstarfi við Veiðifélag Hvítár og Norðlingafljóts. Með þessum framkvæmdum verður hægt að byggja upp sjálfbæran laxastofn á búsvæði Norðlingafljóts, sem rennur í Hvítá. „Áin hefur í raun og veru alla burði til þess að vera mjög flott og falleg laxveiðiá. Það er heilmikið vatn í henni og fallegir staðir til veiða,” segir Sigurður Már Einarsson fiskifræðingur.
Þúsund laxa veiði
„Miðað við búsvæðin og frjósemi þeirra geri ég alveg ráð fyrir að þetta gæti staðið undir þúsund laxa veiði,“ bætir hann við.
Fiskvegir, oft nefndir laxastigar, hafa verið byggðir víða hér á landi og eru ein árangursríkasta leið til fiskræktar sem til er. Fyrsti eiginlegi fiskvegur landsins var byggður árið 1932 og síðan þá hafa um 100 slíkir verið opnaðir víðs vegar um land.
Þessi framkvæmd er óvenjuleg að því leyti að nú er verið, í fyrsta skipti á Íslandi, að byggja fiskveg í jarðgöngum. Gert er ráð fyrir að neðri endi fiskvegarins opnist út í Hvítá um 70 m neðan við göngubrú yfir ána skammt frá Barnafossi. Neðri endinn verður þar utan við ólgu og straumþunga sem er í gljúfrinu neðan við fossinn. Frá þeim stað mun fiskvegurinn liggja í jarðgöngum í bergi austur með Hvítá, í um 50 m fjarlægð frá árfarveginum á um 10 m dýpi, og opnast að ofanverðu um það bil 150 m ofan við Barnafoss. Samtals verður fiskvegurinn um 300 m langur. Sprengiefni er meðal þess sem verður notað við gröft ganganna. Sprengt verður á kvöldin og nóttunni til að takmarka truflun.
Friðlýst svæði
Það sem vekur einnig athygli við framkvæmdirnar er að svæðið sem göngin munu liggja undir er friðlýst sem náttúruvætti, auk þess sem þetta er vinsæll viðkomustaður ferðamanna. Áætlaður framkvæmdatími eru tveir mánuðir og munu framkvæmdir aðallega fara fram á þeim tíma sólarhrings sem fáir eða engir gestir verða á svæðinu. „Þetta er friðað svæði, svo að mikilvægt er að ekki sé verið að hrófla við einu né neinu þarna. Þess vegna var lagt til að gera fiskveg í jarðgöngum framhjá Barnafossi þannig að það sæjust engin ummerki á yfirborðinu,“ segir Sigurður Már.
Fiskvegur í Hvítá
Framkvæmdir áætlaðar við Barnafossa.
Stefna á að byggja upp sjálfbæran laxstofn í Norðlingafljóti.
Svæðið gæti staðið undir þúsund laxa veiði.
Fyrsta skipti sem fiskvegur liggur um jarðgöng á Íslandi.
Friðlýst náttúruvætti.
Jarðborun og sprengingar notaðar við gröft gangnanna.
Framkvæmd tekur um 2 mánuði og fer fram þegar lítill manngangur er á svæðinu.