Áformað er að gera fiskveg í jarðgöngum við Hraunfossa og Barnafoss í Hvítá, þannig að áin verði laxgeng ofan við fossana. Framkvæmdin er sú fyrsta sinnar tegundar hér á landi en annað eins má finna víða erlendis, meðal annars í Noregi.
Markmið framkvæmdanna er að byggja upp sjálfbæran laxastofn á búsvæði Norðlingafljóts, sem rennur í Hvítá. Framkvæmdin er óvenjuleg að því leyti að nú er verið, í fyrsta skipti á Íslandi, að byggja fiskveg í jarðgöngum. Notast verður við sprengiefni og jarðbora við gröft ganganna.
Sigurður Már Einarsson fiskifræðingur segir að áin hafi alla burði til þess að vera mjög flott og falleg laxveiðiá. Hann gerir ráð fyrir að þetta svæði gæti staðið undir þúsund laxa veiði.
Hraunfossar og Barnafoss hafa verið friðlýst náttúruvætti frá árinu 1987. Framkvæmdaaðilar fullyrða að engin ummerki muni sjást á svæðinu að verkinu loknu. Búist er við að framkvæmdir standi í um tvo mánuði. » 20