Björn Diljan Hálfdanarson
bdh@mbl.is
Búast má við lækkun á álagningu fasteignagjalda í Mosfellsbæ og Reykjanesbæ, að sögn bæjarstjóra þar. Næstu skref Fjarðabyggðar eru enn óljós.
„Bæjaryfirvöld hafa á undanförnum árum lækkað álagninguna til þess að hún hækki ekki umfram vísitölu neysluverðs. Ég reikna með að það verði tekin svipuð nálgun í ár og hefur verið tekin á síðustu árum,“ segir Regína Ástvaldsdóttir bæjarstjóri Mosfellsbæjar, en bætir við að engin lokaákvörðun hafi verið tekin í þessum efnum.
Regína bætir við að mikil uppbygging eigi sér nú stað í bæjarfélaginu.
„Við erum í rosalega stórum skipulagsverkefnum, við erum að undirbúa deiliskipulag fyrir fyrsta áfanga í Blikastaðahverfinu og þar er gert ráð fyrir allt að 3.500-3.700 íbúum í þeim hluta. Síðan þegar seinni hluti hverfisins er klár er gert ráð fyrir um 9.000 manna byggð þarna. Það er gríðarleg fjölgun fram undan og mikið í gangi,“ segir hún.
Reykjanesbær stefnir sem fyrr segir líka á lækkun álags en þar hækkaði fasteignaverð einna mest samkvæmt nýju fasteignamati.
Margrét Sanders, oddviti Sjálfstæðisflokksins í Reykjanesbæ, hafði fyrir nokkrum dögum skorað á meirihlutann að lækka álögur á íbúa í bænum og svo virðist vera sem samhugur sé í bæjarstjórn um það.
„Líkt og undanfarin ár mun meirihluti bæjarstjórnar í Reykjanesbæ stefna á að lækka áfram álögur á íbúa eins og kostur er,“ segir Halldóra Fríða Þorvaldsdóttir, starfandi bæjarstjóri í Reykjanesbæ, og bætir við að álagningarhlutfall á íbúðarhúsnæði í bænum hafi undanfarin fimm ár lækkað úr 0,36% í 0,25%.
Halldóra segir jafnframt að ástæðan fyrir hækkuðu fasteignamati í bæjarfélaginu stafi ekki einungis af matshækkun heldur einnig vegna mikillar fjölgunar húsnæðis í Reykjanesbæ. Hún segir að meirihlutinn í bæjarstjórn sé nú að skoða hvernig best sé að bregðast við umræddum hækkunum með hag bæjarbúa að leiðarljósi.
Gunnar Jónsson, bæjarritari í Fjarðabyggð, sagði í samtali við Morgunblaðið að engin ákvörðun hefði verið tekin í kjölfar hækkunarinnar. Hann segist þó búast við því að líkt og á undanförnum árum muni bæjarfélagið þurfa að hækka ákveðna þætti fasteignagjaldsins en muni reyna að lækka álagninguna á móti.