Höskuldur Daði Magnússon
hdm@mbl.is
Ekki hefur tekist að snúa við taprekstri Ríkisútvarpsins á þessu ári. Sem kunnugt er varð um 200 milljóna tap á rekstrinum í fyrra en stefnt var að því að RÚV myndi skila jákvæðum rekstrarafgangi í ár og að hagnaður ársins yrði að minnsta kosti 100 milljónir króna fyrir skatta.
„Afkoma fyrir afskriftir og fjármagnsliði var neikvæð um 13. m.kr. í febrúar sem sé tæplega 21 m.kr. lakari afkoma en gert var ráð fyrir,“ segir í kynningu fjármálastjóra á stjórnarfundi RÚV hinn 26. mars síðastliðinn. Fundargerðin var nýlega birt á vef RÚV.
Þar segir jafnframt að auglýsingatekjur hafi verið undir áætlun en áfram sé gert ráð fyrir að tekjur verði í samræmi við áætlun fyrir árið í heild sinni.
„Að teknu tilliti til afskrifta og fjármagnsliða nam taprekstur frá janúar til loka febrúar 119 m.kr. Það er tæplega 7 m.kr. lakari afkoma en áætlun gerði ráð fyrir. Að svo stöddu sé áfram gert ráð fyrir að áætlun ársins um 100 m.kr. afgang í rekstri haldi,“ segir í fundargerðinni.
Rakið er að eitt af markmiðum síðasta árs hafi verið að ná betri tökum á sjóðstýringu og bæta sjóðstöðuna. „Fólust þær breytingar m.a. í hagræðingaraðgerðum í rekstri, samdrætti í fjárfestingu og tilfærslum í kaupum á sýningarréttum. … Sjóðstaða RÚV hefur haldist jákvæð á árinu 2025. Áfram verði unnið að bættu verklagi og ferlum við áætlanagerð og sjóðstýringu. Unnið sé að því að áætlanir verði unnar til 3ja ára í senn.“