Kjartan Leifur Sigurðsson
kjartanleifur@mbl.is
Tilkynnt var á Alþingi í gærkvöld að starfsáætlun þingsins hefði verið felld úr gildi. Áætlað hafði verið að þinglok yrðu 13. júní næstkomandi. Óljóst er að svo stöddu hvenær þinglok verða.
Þórunn Sveinbjarnardóttir, forseti Alþingis, segir í samtali við Morgunblaðið að þingflokksformenn hafi rætt saman í vikunni og það hafi leitt til þess að áætlunin hafi verið felld úr gildi. Að sögn Þórunnar er þó engin lausn á borðinu er varðar þinglok en hún vonast til þess að það skýrist í næstu viku. Ljóst er að fundað verður stíft á þinginu á komandi dögum, en meðfram því að starfsáætlunin var felld úr gildi var ákveðið að bæta við þingfundi sem fer fram í dag.
Sigmar Guðmundsson, þingflokksformaður Viðreisnar, segir í samtali við blaðið að þingflokksformennirnir séu sífellt í sambandi. Hann gerir ráð fyrir því að boðað verði til fundar fljótlega til þess að komast að niðurstöðu í málinu. Sigmar kveðst vongóður um að þingstörf dragist ekki of mikið á langinn en hann segist jafnvel hóflega bjartsýnn á að þinglokin verði á réttum tíma þrátt fyrir allt. Hann telur þó líklegustu niðurstöðuna vera þá að þinglok verði eitthvað seinna en gert var ráð fyrir í upphafi.
„Um leið og það næst samkomulag er þetta frekar fljótt að gerast. Ég er vongóður um að samkomulag um þinglok sé í augsýn, slíkt samkomulag hefur alltaf náðst á endanum og það er ekkert nýtt í þessari stöðu sem er uppi núna. Það er alltaf þannig í þinglokum að mörg mál eru ókláruð en ljóst er að það verður nóg hjá okkur að gera á komandi dögum,“ segir Sigmar.
Formlegar viðræður um þinglok eru ekki hafnar að sögn Hildar Sverrisdóttur, þingflokksformanns Sjálfstæðisflokksins, í samtali við blaðið. Hún segir þó ákveðnar þreifingar hafa átt sér stað síðastliðna daga. „Við urðum hissa þegar við sáum að ríkisstjórnin ákvað að setja bókun 35 á dagskrá, enda er ljóst að það mál krefst drjúgrar umræðu. Ef við horfum á þetta í samhengi við samninga um þinglok vekur þetta ákveðna undrun,“ segir Hildur og bætir við að ákvörðunin um að fella starfsáætlun þingsins úr gildi hafi ekki komið henni á óvart.