Tónleikaröðin „Sumarjazz á Jómfrúnni“ hefst í dag með tónleikum söngkonunnar Silvu Þórðardóttur og hljómsveitar hennar Skemmtilegt & gaman. Er þetta 30. sumarið í röð sem tónleikaröðin fer fram og verða tónleikar haldnir kl

Tónleikaröðin „Sumarjazz á Jómfrúnni“ hefst í dag með tónleikum söngkonunnar Silvu Þórðardóttur og hljómsveitar hennar Skemmtilegt & gaman. Er þetta 30. sumarið í röð sem tónleikaröðin fer fram og verða tónleikar haldnir kl. 15 á hverjum laugardegi í júní, júlí og ágúst. Listrænn stjórnandi er eins og undanfarin ár saxófónleikarinn Sigurður Flosason. Á tónleikunum í kvöld verða leiknir amerískir „jazz-standardar“ í bland við íslensk dægurlög. Aðgangur er ókeypis.