Bandarískir hermenn eru mættir til Panama í Mið-Ameríku til að taka þar þátt í sameiginlegri heræfingu með hersveitum heimamanna. Er þetta fyrsta æfing hersveitanna saman síðan Bandaríkjaforseti undirritaði varnarsamning milli ríkjanna, en hann kom til í kjölfar yfirlýsingar frá Bandaríkjunum þar sem lýst var yfir áhuga á að taka alfarið yfir stjórn á siglingum um Panamaskurð. Á sama tíma og æfingin fer fram stendur stór hópur fólks fyrir framan sendiráð Bandaríkjanna og mótmælir veru hersveitanna og stjórnvöldum vestanhafs.
Bandaríkjaforseti hefur áður sagt Kínverja hafa of mikil ítök í Panama og þá einkum á skurðinum sjálfum. Um 40% af öllum fraktskipaflutningi til og frá Bandaríkjunum fara um skurðinn.