Mikill viðbúnaður var í gær þegar tilkynning barst upp úr klukkan fjögur um að einstaklingur hefði fallið í Brúará við Hlauptungufoss.
Var mikið viðbragðslið boðað á vettvang vegna slyssins, straumvatnsbjörgunarhópar frá björgunarsveitum á Suðurlandi og höfuðborgarsvæðinu, sjúkrabifreiðar frá Heilbrigðisstofnun Suðurlands, Brunavarnir Árnessýslu og þyrla Landhelgisgæslunnar.
Lögreglan á Suðurlandi sendi frá sér tilkynningu um hálfsexleytið um að einstaklingurinn væri fundinn. Garðar Már Garðarsson, aðalvarðstjóri lögreglunnar á Suðurlandi, staðfesti í gærkvöldi í samtali við mbl.is að um erlendan ferðamann hefði verið að ræða, en ekki var hægt að gefa upp upplýsingar um ástand hans eða þjóðerni.
Lögreglan á Suðurlandi rannsakar nú tildrög slyssins.
Nokkur slys hafa orðið í Brúará á undanförnum árum. Í júlí 2022 varð banaslys í ánni við Brekkuskóg, þegar ferðamaður stökk í ána, en hann náði að bjarga syni sínum frá drukknun. Í júli árið 2023 var einstaklingur fluttur á sjúkrahús eftir fall í ána, og í september í fyrra féll ferðamaður frá Katar í Hlauptungufoss við Brúará og fannst hann látinn.