Vinslit Musk og Trump sjást hér á viðburðinum í mars, þar sem forsetinn keypti Teslu til að sýna stuðning sinn.
Vinslit Musk og Trump sjást hér á viðburðinum í mars, þar sem forsetinn keypti Teslu til að sýna stuðning sinn. — AFP/Mandel Ngan
Talsmenn Hvíta hússins sögðu í gær að Donald Trump Bandaríkjaforseti hefði engin áform um að hringja í Elon Musk, stofnanda bílaframleiðandans Teslu og fyrrum ráðgjafa sinn, eftir netrifrildi þeirra í fyrrakvöld sem vakti heimsathygli

Stefán Gunnar Sveinsson

sgs@mbl.is

Talsmenn Hvíta hússins sögðu í gær að Donald Trump Bandaríkjaforseti hefði engin áform um að hringja í Elon Musk, stofnanda bílaframleiðandans Teslu og fyrrum ráðgjafa sinn, eftir netrifrildi þeirra í fyrrakvöld sem vakti heimsathygli.

Trump tjáði sig aftur um deilu sína við Musk í gær og sagði að hann teldi að Musk hefði „tapað vitglórunni“. Þá sagðist Trump jafnframt vera að íhuga að selja eða jafnvel gefa Tesluna sína, sem hann keypti í marsmánuði til þess að sýna Musk stuðning sinn í verki. Teslan er jafnan geymd á lóð Hvíta hússins og er notuð af starfsmönnum þess.

Trump ræddi við hina ýmsu fjölmiðla símleiðis í gær og var rauði þráðurinn í þeim samtölum sá að Trump teldi að Musk hefði týnt viti. Sagði hann það m.a. við bæði ABC-sjónvarpsstöðina og Fox News.

Þá gaf Trump í skyn við fréttakonuna Dana Bash hjá CNN-sjónvarpsstöðinni að Musk ætti við vanda að etja, án þess að geta þess hvers eðlis sá vandi væri. Dagblaðið New York Times birti hins vegar frétt í síðustu viku þar sem því var haldið fram að Musk hefði tekið inn mikið magn lyfja, jafnvel ólöglegra, á meðan á kosningabaráttu Trumps stóð í fyrra.

Hvíta húsið hélt að sögn heimildarmanna AFP-fréttastofunnar neyðarfund í fyrrakvöld til þess að ræða hvernig taka ætti á stöðu mála eftir að Musk og Trump fóru að skiptast á gífuryrðum á samfélagsmiðlum, en Musk bendlaði Trump m.a. við kynferðisbrotamanninn Jeffrey Epstein og sagði að réttast væri að svipta Trump embætti og gera JD Vance varaforseta að forseta.

Steve Bannon, fyrrverandi ráðgjafi Trumps, skoraði á Trump í fyrrakvöld að afturkalla ríkisborgararétt Musks og senda úr landi, en Musk er fæddur í Suður-Afríku. Í gær bætti Bannon um betur og sagði Musk vera á mála hjá kínverskum stjórnvöldum. Lagði Bannon til að bandaríska alríkið tæki yfir fyrirtæki Musks, sem svaraði því til á samfélagsmiðlum sínum að Bannon væri dæmdur glæpamaður.

Deilan hefur einnig vakið athygli utan Bandaríkjanna og sagði rússneski þingmaðurinn Dmitrí Novikov að Rússar væru tilbúnir að veita Musk pólitískt hæli.

Paula Pinho, talsmaður framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins, sagði í gær aðspurð að Elon Musk yrði boðinn „mjög velkominn“ til Evrópu ef hann vildi færa fyrirtæki sín þangað frá Bandaríkjunum, en Musk hefur verið mjög gagnrýninn á ESB undanfarin misseri.

Höf.: Stefán Gunnar Sveinsson