Alþingi Guðrún Hafsteinsdóttir er ómyrk í máli um Víðismálið.
Alþingi Guðrún Hafsteinsdóttir er ómyrk í máli um Víðismálið. — Morgunblaðið/Karítas
Guðrún Hafsteinsdóttir formaður Sjálfstæðisflokksins segir að fregnir um að Víðir Reynisson hafi átt í samskiptum við forsætisráðuneytið vegna máls kólumbísks pilts staðfesti það álit sitt að málið snúist hvorki um undantekningu né mannúð, heldur óforsvaranleg pólitísk afskipti af stjórnsýslunni

Andrés Magnússon

andres@mbl.is

Guðrún Hafsteinsdóttir formaður Sjálfstæðisflokksins segir að fregnir um að Víðir Reynisson hafi átt í samskiptum við forsætisráðuneytið vegna máls kólumbísks pilts staðfesti það álit sitt að málið snúist hvorki um undantekningu né mannúð, heldur óforsvaranleg pólitísk afskipti af stjórnsýslunni.

„Þetta eru afskipti sem eiga ekki sjást í lýðræðisríki og alls ekki inni á skrifstofu forsætisráðherra,“ segir Guðrún í samtali við Morgunblaðið.

Óvenjuleg samskipti Víðis við ríkis­lögreglustjóra og Útlendingastofnun, vegna mögulegrar veitingar ríkisborgararéttar til kólumbísks pilts til þess að koma í veg fyrir brottvísun hans úr landinu, hafa vakið úlfúð á þingi liðna daga.

Í gærkvöld sagði Ríkisútvarpið svo frá því að Víðir hefði jafnframt haft samband við forsætisráðuneytið, en málið er ekki með neinum hætti á forræði eða í verkahring forsætisráðherra eða embættismanna á vegum þess ráðuneytis. Kristrún Frostadóttir hefur rætt um málið opinberlega en ekki skýrt frá því að henni hafi verið kunnugt um það í viku.

Guðrún segir engan vafa leika á því að Víðir hafi brotið trúnað, beinlínis í þeim tilgangi að koma í veg fyrir framkvæmd stjórnvaldsákvörðunar, sem hann hafi enga heimild til, en um leið brotið á jafnræði 18 annarra sem eigi brottvísun yfir höfði sér.

„Ég skil ekki hvernig Víðir getur setið áfram sem nefndarformaður.“

Morgunblaðið reyndi ítrekað en án árangurs að ná tali af Kristrúnu og Víði vegna þessa. » 4

Höf.: Andrés Magnússon