Spursmál Ásgeir Jónsson seðlabankastjóri ræddi við Stefán Einar.
Spursmál Ásgeir Jónsson seðlabankastjóri ræddi við Stefán Einar.
Ekki væri ráðlegt fyrir Seðlabankann að lækka vexti á sama tíma og hann myndi rýmka lánþegaskilyrði sem fjármálastöðugleikanefnd bankans hefur sett. Þetta segir Ásgeir Jónsson seðlabankastjóri. Hann segir enn nokkuð í land með að jafnvægi náist í…

Ekki væri ráðlegt fyrir Seðlabankann að lækka vexti á sama tíma og hann myndi rýmka lánþegaskilyrði sem fjármálastöðugleikanefnd bankans hefur sett. Þetta segir Ásgeir Jónsson seðlabankastjóri. Hann segir enn nokkuð í land með að jafnvægi náist í hagkerfinu og að þar sé stóra verkefnið að húsnæðismarkaðurinn komist í betra jafnvægi en verið hefur.

„Við höfum viljað slaka á skilyrðum til fyrstu kaupenda en við viljum að markaðurinn sé kominn í jafnvægi áður,“ segir Ásgeir í ítarlegu viðtali á vettvangi Spursmála. Bendir hann á að ungt fólk hafi væntingar til framtíðar um að hækka í launum og því megi hafa skilyrðin gagnvart því rýmri en öðrum. Gjalda verði varhug við því hins vegar að fólk skuldsetji sig mikið. Það geti reynst þungbært ef hlutir snúist til verri vegar.

Ásgeir segist trúa því að fasteignamarkaðurinn muni ná jafnvægi.

„Það hefur verið gríðarleg fólksfjölgun og mikil þörf á húsnæði. Byggingageirinn fór mjög illa eftir hrunið en nú erum við með mjög sterka verktaka [...] við höfum ekki áhyggjur af geiranum sem slíkum.“

Segir Ásgeir að til lengri tiíma þurfi að huga að því að byggja á nýjum svæðum og brjóta nýtt land. Lægri framleiðslukostnaður fylgi því. Hins vegar sé það ekki hlutverk Seðlabankans að hlutast til um það. „En meðan þessi staða er fyrir hendi verðum við að halda aftur af eftirspurninni og við höfum verið að gera það,“ segir Ásgeir.

Hann viðurkennir hins vegar að eftirspurnin geti hlaðist upp meðan lokinu sé haldið aftur af markaðnum.

„Það er þannig að Seðlabankanum og mér sem bankastjóra eru fengin ákveðin markmið en auðvitað eru aðrir hlutir sem við ráðum ekki við. Það er alveg örugglega þannig að þegar við takmörkum aðgengi fólks að því að kaupa fasteignir kemur þrýstingur á leigumarkaðinn og leiguverð hækkar,“ viðurkennir Ásgeir.

Seðlabankastjóri segir auk þess að væntingar séu um að nú sé framboð að aukast. Nýjar íbúðir séu að koma á markað og að þegar slakað verði á vöxtunum verði nóg af íbúðum til að taka við eftirspurninni. „En það er líka ákveðið vandamál að það er ekki verið að byggja alveg réttar eignir, ekki það sem ungt fólk vill kaupa. Litlar eignir og ódýrar.“