Vinsælt Hygge á Seljavegi var valið eitt besta kaffihús Reykjavíkur hjá tímaritinu Grapevine árið 2022.
Vinsælt Hygge á Seljavegi var valið eitt besta kaffihús Reykjavíkur hjá tímaritinu Grapevine árið 2022.
[ Smellið til að sjá stærri mynd ]
Veitingamaðurinn Axel Þorsteinsson skiptir samviskusamlega um miða í glugganum á bakaríi sínu við Barónsstíg á hverjum degi. Á miðanum stendur að Hygge bíði eftir starfsleyfi frá borgaryfirvöldum. Í dag eru 200 dagar síðan Axel sótti fyrst um starfsleyfi

Höskuldur Daði Magnússon

hdm@mbl.is

Veitingamaðurinn Axel Þorsteinsson skiptir samviskusamlega um miða í glugganum á bakaríi sínu við Barónsstíg á hverjum degi. Á miðanum stendur að Hygge bíði eftir starfsleyfi frá borgaryfirvöldum. Í dag eru 200 dagar síðan Axel sótti fyrst um starfsleyfi.

„Við sóttum um í nóvember í fyrra þegar Nebraska var lokað í sama húsnæði. Þá gerðum við þau reginmistök að setja upp einn og hálfan gifsvegg. Við það fór allt kerfið í gang og látið var eins og við hefðum verið að byggja nýja Hallgrímskirkju. Hér erum við enn. Ég verð að segja að það er til háborinnar skammar hvernig komið er fram við fólk sem er að reyna að standa í veitingarekstri,“ segir Axel.

Hygge hefur verið rekið við góðan orðstír við Seljaveg í tæp þrjú ár. Ekki er leyfi fyrir hendi þar til framleiðslu og því hugðust Axel og samstarfsmenn hans bæta við öðru bakaríi þar sem hægt væri að framleiða vörur fyrir bæði bakaríin. Metnaður er lagður í framleiðsluna, hvort sem það eru sultur eða brauðmeti. Allt er gert frá grunni, ekkert er keypt frosið eins og tíðkast víða annars staðar.

Afar íþyngjandi reglugerð

Axel segir farir sínar ekki sléttar í samskiptum við Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur. Tónninn var gefinn strax í fyrsta svari sem hann fékk frá eftirlitinu. „Það er vonandi ekki sú staðsetning sem þið hafið hugsað ykkur að vera með framleiðslubakarí á?“ sagði í svari heilbrigðisfulltrúa.

Veitingamaðurinn furðar sig á því að heilbrigðisfulltrúi telji sig hafa vald til að ákveða hvaða starfsemi eigi heima í hverju rými óháð landnotkun, fyrirliggjandi leigusamningi eða samþykktum. Hann segir raunar að allt frá upphafi hafi heilbrigðiseftirlitið gert allt til að hindra opnun bakarísins; beitt byggingarfulltrúa þrýstingi og tafið málið með því að svara ekki póstum í 10-14 daga hverju sinni. Það hafi bæði lengt og flækt málsmeðferðina.

Ofan á allt hafi svo málið tafist frekar vegna nýrrar reglugerðar sem gekk í gildi í maí. Í henni felst að þegar leyfi hefur verið samþykkt þá er það sett í kynningu á heimasíðu heilbrigðiseftirlitsins í fjórar vikur þar sem hægt er að gera athugasemdir. Að þeim tíma liðnum getur fólk þurft að bíða í allt að fjórar vikur eftir endanlegri ákvörðun starfsmanna eftirlitsins. Segir Axel að reglugerðin sýni vel hversu lítið er hugað að rekstraröryggi veitingastaða. Ekki megi fara í auglýsingaferli fyrr en öll leyfi séu komin í hús. „Og svo á að sitja á staðnum í 4-8 vikur meðan þau fara yfir málin,“ segir hann.

Tekjulaus í sex mánuði

„Við erum búin að vera í bölvuðu stríði við þau. Ég er búinn að senda fyrirspurnir á yfirmenn hjá heilbrigðiseftirlitinu, bæði gamla og nýja borgarstjórann og ráðherra. Það er bara eins og það sé fullt af fólki sem mætir í vinnuna en sé ekki að vinna,“ segir Axel.

Hann kveðst hafa farið fram á að heilbrigðiseftirlitið veitti bráðabirgðaleyfi til að hann gæti opnað bakaríið. „Ég er búinn að vera tekjulaus í sex mánuði með leiguna hérna. Mér finnst það vera neyð sem réttlætir bráðabirgðaleyfi en þeim finnst það ekki.“

Rekstrarleyfi Hygge á Barónsstíg fór í grenndarkynningu í byrjun síðustu viku. „Nú eru því tvær vikur af þessum fjórum búnar svo það fer að sjá til lands. En við erum búin að missa af jólunum og bolludeginum, við missum núna af hvítasunnuhelginni og 17. júní og það er öllum drullusama. Maður veltir því fyrir sér af hverju þetta er svona erfitt. Sjá þau ekki að þetta kerfi er hamlandi fyrir þá sem eru að reka fyrirtæki? Þetta er í það minnsta þvert á fyrirætlanir stjórnvalda í Reykjavík um að skapa lifandi jarðhæðir og skemmtilega borg.“

Endalaus vandamál

Axel og samstarfsfólk hans gafst upp á biðinni nú í vor og keyptu annað bakarí til að geta framleitt og haldið fyrirtækinu gangandi. Nú er framleiðslan í gamla Brauðhúsinu í Grímsbæ. „Við keyptum kennitöluna. Bakaríið er búið að vera með leyfi á þeim stað í 50 ár. En frá því við tókum við í mars er heilbrigðiseftirltið búið að koma tvisvar í heimsókn.“

Axel er bakari og konditor og hefur starfað um allan heim. Hann er nýfluttur heim og segir það hafa komið sér á óvart hvernig kerfið er hér. „Það er endalaust verið að stilla upp vandamálum fyrir manni í stað lausna og leiðbeininga,“ segir Axel og bætir við að mismunandi viðhorf mæti honum eftir því hvaða heilbrigðisfulltrúi á í hlut. Heilbrigðisfulltrúi sem hefur komið í Grímsbæ vinni með þeim, leiðbeini og stýrir hlutunum í rétta átt. „Því auðvitað erum við með sama markmið, að tryggja matvælaöryggi.“

Heilbrigðisfulltrúinn sem sér um Barónsstíg hafi hins vegar veitt litlar leiðbeiningar og eingöngu stillt vandamálum upp, segir Axel.

Höf.: Höskuldur Daði Magnússon