Keppni í Bestu deild kvenna er komin aftur í gang eftir landsleikjahléið og lýkur áttundu umferðinni, sem hófst í gær, í dag með fjórum leikjum. Stórleikur umferðarinnar er viðureign Þróttar og Þórs/KA í Laugardalnum klukkan 17, en Þróttarkonur eru á toppnum og Akureyrarliðið í fjórða sæti
Keppni í Bestu deild kvenna er komin aftur í gang eftir landsleikjahléið og lýkur áttundu umferðinni, sem hófst í gær, í dag með fjórum leikjum. Stórleikur umferðarinnar er viðureign Þróttar og Þórs/KA í Laugardalnum klukkan 17, en Þróttarkonur eru á toppnum og Akureyrarliðið í fjórða sæti. Hinir leikirnir hefjast klukkan 14, Breiðablik mætir FHL á Kópavogsvelli, Víkingur fær FH í heimsókn í Fossvoginn og Fram mætir Stjörnunni í Úlfarsárdal.