Gífurleg eftirvænting lá í loftinu þegar 21 hlaupari lagði af stað í 106 kílómetra hlaup um Hengilssvæðið í Hengill Ultra-hlaupinu sem ræst var í miðbæ Hveragerðis í gærkvöldi.
Hlaupið er í alla nótt og er von á að fyrstu keppendur komi í mark undir morgun. Þeir þátttakendur sem Morgunblaðið ræddi við áður en hlaupið hófst kváðust nokkuð taugaóstyrkir enda þyrfti að huga að ýmsu fyrir langhlaup sem þetta.
Frá miðbæ Hveragerðis liggur leið keppenda inn að Hengli, yfir fjallgarðinn, niður Sleggjubeinsskarð og þaðan til baka. Þá hafa keppendur þó aðeins lokið 53 kílómetrum og leggja af stað í annan hring.