Niðurstaða er væntanleg eftir helgi í máli Helga Magnúsar Gunnarssonar vararíkissaksóknara, að sögn Þorbjargar Sigríðar Gunnlaugsdóttur dómsmálaráðherra.
Sigríður J. Friðjónsdóttir ríkissaksóknari hefur síðan í desember afþakkað starfskrafta Helga Magnúsar og ekki falið honum nein verkefni þar sem hún segir hann skorta almennt hæfi til að gegna embættinu. Helgi hefur þannig ekki fengið verkefni síðan hann sneri aftur til starfa í desember í kjölfar þess að þáv. dómsmálaráðherra, Guðrún Hafsteinsdóttir, hafnaði beiðni Sigríðar um að reka Helga vegna ummæla vararíkissaksóknarans á Facebook um innflytjendur frá Mið-Austurlöndum.