— AFP/Yuriy Dyachyshyn
Úkraínski hermaðurinn Oleksandr Zavnenko sést hér dansa á gervifótum með Maríu konunni sinni í borginni Lvív í vesturhluta Úkraínu. Oleksandr var sjálfur dansari og María danshönnuður áður en allsherjarinnrás Rússa í Úkraínu hófst árið 2022

Úkraínski hermaðurinn Oleksandr Zavnenko sést hér dansa á gervifótum með Maríu konunni sinni í borginni Lvív í vesturhluta Úkraínu. Oleksandr var sjálfur dansari og María danshönnuður áður en allsherjarinnrás Rússa í Úkraínu hófst árið 2022.

Oleksandr barðist með 12. sérsveitarstórfylkinu „Asov“ gegn Rússum áður en hann missti báða fætur í október 2024. Dreymdi hann þó ávallt um að geta snúið aftur til síns fyrra lífs sem dansari, og varð draumur hans að veruleika fyrr í vikunni.

Oleksandr hlaut gervifætur og endurhæfingu hjá endurhæfingarsjúkrahúsinu Unbroken Medical Center í Lvív, en þess má geta að íslenski stoðtækjasmiðurinn Össur undirritaði samstarfssamning við Unbroken í maí 2023.