Sviðsljós
Signý Pála Pálsdóttir
signyp@mbl.is
Leigubílafrumvarp er nú til umræðu á Alþingi. Fjölmargar umsagnir og álit um frumvarpið hafa borist úr ýmsum áttum og samkvæmt þeim eru skoðanir skiptar um málið.
Neytendasamtökin koma með þá tillögu að stofna sjálfstæða úrskurðarnefnd fyrir kvartanir um leigubílstjóra að danskri fyrirmynd, nokkurs konar kærunefnd. Tillagan gengur út á að gera farveg fyrir kvartanir yfir verði og gæðum þjónustu, sem myndi auka traust almennings til leigubílaþjónustu hér á landi.
Þar að auki undirstrika samtökin mikilvægi þess að frumvarpið verði ekki til þess að aðgangur nýrra aðila að markaðnum verði takmarkaður og nefndu þar sérstaklega aðila eins og Bolt og Uber.
Enga stöðvunarskyldu
Viðskiptaráð lýsir því yfir að frumvarpið sé afturför fyrir leigubílaþjónustu á Íslandi. Bendir það á að aðgangshindranir á leigubílamarkaði muni aukast, samkeppni minnka og verið sé að koma á stöðvunarskylda rekstrarleyfishafa á ný, sem muni skila sér í hærra verði og verri þjónustu.
Viðskiptaráð bendir einnig á að breytingarnar muni vinda ofan af framfaraskrefum í átt að auknu frelsi á leigubílamarkaði.
Þar að auki leggst Viðskiptaráð gegn tillögum um námskröfur til leigubílstjóra sem eru leigubílaakstri óviðkomandi. Þau vilja því að það nægi að hafa almenn ökuréttindi til að geta ekið leigubíl, þar sem auknar námskröfur geta leitt til hærra verðlags fyrir neytendur.
Verðskrá hvergi aðgengileg
Neytendastofa gerir ekki efnislegar athugasemdir við frumvarpið en setur út á að gjaldskrá sé hvergi sjáanleg fyrir farþega. Neytendastofa segir aðgengilegar verðupplýsingar mikilvægar fyrir neytendur til að taka upplýstar ákvarðanir um hvort þeir vilji eiga viðskipti vil tiltekinn leigubíl. Stofan bendir á að upplýsingar um verð séu forsenda þess að neytendur geti gætt að því hvort þeir séu rétt rukkaðir samkvæmt gjaldskrá.
Hreyfill gerir grein fyrir ýmsum efnum. Til að mynda bendir Hreyfill á það að skerpa þurfi á orðalagi um að gjaldmælir þurfi að ganga í bifreið ef ferð var ekki fyrirframpöntuð til þess að réttmæti verðtilboðsins sé tryggt.
Hreyfill bendir einnig á að leigubílar hér á landi skuli betur merktir, eins og tíðkist erlendis þar sem leigubílar hafa sérstakar númeraplötur. Slíkt auðveldi eftirlit með ástandi bílanna. Talsmenn Hreyfils vilja að sett verði ákvæði um hámarksaldur ökumanna til þess að tryggja öryggi farþega og bílstjóra.
Hreyfill sendir einnig inn ábendingu varðandi öryggi ökumanna, þar sem árásir á leigubílstjóra Hreyfils hafa stóraukist frá öðrum bílstjórum annarra stöðva. Þeir benda á að laga þurfi ástandið á leigubílaröðinni á Keflavíkurflugvelli, þar sem glundroði ríkir að þeirra sögn. Þeir stinga upp á því að starfsmaður flugvallar muni stýra farþegum í leigubíla eins og tíðkast á erlendum flughöfnum.
Betra eftirlit
Samtök atvinnulífsins ítreka það að ráðast verði að rót vandans á leigubílamarkaðnum, sem snýr að því að eftirlit verði aukið. Sömuleiðis fara þau fram á það að stuðlað verði að frekari samkeppni á markaði.
Leigubílafrumvarpið
Ýmsar breytingar
Breytingarnar í nýju leigubílafrumvarpi eru meðal annars þær að heimild rekstrarleyfishafa til að reka leigubílastöð án starfsleyfis leigubílastöðvar verði felld niður.
Rekstrarleyfishafar verða skyldir til að veita leigubílastöð nauðsynlegar upplýsingar svo stöðin geti uppfyllt skyldur sínar.
Þar að auki er leigubílastöðvum gert að bjóða neytendum upp á farveg fyrir kvartanir sem varða gæði þjónustu og verð.
Markmið breytinganna er að tryggja öruggari, hagkvæmari og skilvirkari þjónustu.