Sviðsljós
Diljá Valdimarsdóttir
dilja@mbl.is
Hópur manna kom saman í svetttjaldi við Apavatn í gær á vegum Þorláks Hilmars Morthens, sem er betur þekktur sem Tolli. Hann hefur unnið að því að kynna svett í fangelsum landsins en svett hefur reynst afar vel fyrir marga sem setið hafa í fangelsi og glíma við fíknivanda.
Svetti er lýst sem andlegri og líkamlegri hreinsun. Svett fer fram í stóru tjaldi þar sem vatnið er ausið á sjóðheita steina, sem leiðir til þess að afar heitt verður í tjaldinu. Upplifun í svetti er einstaklingsbundin en athöfninni er ætlað að leiða einstaklinginn inn á við og koma honum í meiri tengingu við sjálfan sig. Svettið á uppruna sinn hjá fyrstu ættbálkum Norður- og Mið-Ameríku og er notað á meðal ættbálka þar.
Tolli stýrir athöfninni og leiðir fólk í gegnum einhvers konar ferðalag sem engir tveir upplifa eins. Hann kynntist svetti árið 1996 hjá manni sem kynntist athöfninni hjá indjánum. Tolli eignaðist sitt fyrsta svetttjald árið 2007 og hefur farið reglulega í svett síðan. Í fangelsinu á Sogni og Kvíabryggju er reglulega svett fyrir karla og konur.
„Svett er ákveðin aðferðafræði sem virkar fyrir fólk og hjálpar því að kynnast sjálfu sér. Þetta er ekki bara fyrir fólk í fangelsi heldur fólk í alls kyns hugarástandi. Alls konar fólk kemur og tekur þátt í svetti með okkur. Svettið gerir alla jafna og mætir okkur öllum eins. Kærleikur og samkennd er inni í tjaldinu og það hjálpar okkur að þora að vera við sjálf,“ segir Tolli.
Söngvar frá ættbálkum
Svettið skiptist í fimm lotur og stendur hver lota yfir í rúmar 30 mínútur. Tjaldið er lokað og er vatni ausið á sjóðheita steinana svo gufa myndist. Konur og karlar eru aðskilin í tjaldinu og situr Tolli í miðjunni og stjórnar athöfninni.
Í fyrstu lotunni standa þátttakendur í kringum eld sem brennur fyrir framan tjaldið og þar fer fram tóbaksathöfn en litið er á tóbak sem heilaga jurt í svetti. „Fyrsta lotan á að tengja okkur við anda og vætti himins, jarðar og allra átta. Allt er í sama orkuflæði og við tengjum okkur við það og forfeður okkar,“ segir Tolli.
Næst er farið inn í tjaldið og þá hefst önnur lotan sem einblínir á líkamann og það sem hann geymir. Þriðja lotan einblínir á bænir og er bænahringur þar sem þátttakendur tengja sig við forfeður sína. Fjórða lotan er valdeflingarlota og þá mega þátttakendur tjá sig ef þá langar til. Eftir að hverri lotu lýkur geta þátttakendur farið út úr tjaldinu og kælt sig niður og jafnvel stokkið í ána rétt fyrir utan tjaldið.
Í öllum lotunum eru sungnir söngvar sem koma frá litlum ættbálki í Norður-Ameríku. Að sögn Tolla er óvíst hvað söngvarnir fjalla um þar sem ekki er hægt að finna textana á ritmáli. „Fyrir okkur er þetta eins konar hljóðaljóð með merkingu og tilgang.“
Einnig eru sungnir íslenskir söngvar eins og „Sofðu unga ástin mín“ og möntrur úr búddisma.
Fyrrverandi íslenskir fangar tóku þátt í athöfninni og höfðu allir tekið þátt í svetti áður. Í samtali við blaðamann sögðu þeir svett hafa breytt lífi sínu og gert þá að betri manneskjum. Margir hverjir höfðu tekið þátt í svetti í mörg ár en aðrir kynntust því innan veggja fangelsisins og héldu svetti áfram eftir afplánun.
Þjóðverjar svitna í svetti
Síðustu daga hefur starfshópur verkefnisins Perspektive á vegum Evrópusambandsins verið staddur á landinu. Löndin sem koma að verkefninu eru Grikkland, Ísland, Ítalía, Rúmenía, Tyrkland og Þýskaland. Hópurinn hefur síðustu daga skoðað íslensk fangelsi og þau úrræði sem eru í boði fyrir fanga á Íslandi. Starfshópurinn vinnur að því að bæta úrræði fyrir fólk sem er að koma aftur í samfélagið eftir fangelsisvistun og er markmið starfshópsins að finna leiðir til að hjálpa föngum að laga sig aftur að samfélaginu. Svettið var kynnt hópnum og í framhaldinu ákváðu tíu Þjóðverjar að koma til Tolla og prófa svettið.
Peter Dohmem frá Þýskalandi var stressaður en spenntur að prófa svettið í gær. Hann var spenntur að sjá hvort svettið myndi snerta sál sína en óviss um hvað hann væri að fara út í. Dohmem hafði aldrei heyrt um svett og var áhugasamur að komast að því hvort svett gæti hentað fyrir fanga í Þýskalandi og öðrum Evrópulöndum. „Ég prófa svett með opnum hug og ég þarf að hafa prófað þetta sjálfur ef ég ætla að kynna þetta í öðrum löndum.“
Blaðamaður fór ekki inn í tjaldið og athöfninni var ekki lokið er hann fór. Því er óvíst hvað Dohmem fannst um svettið en áhugavert verður að sjá hvort svett verði tekið upp í fangelsum í Þýskalandi.