Andrés Magnússon
andres@mbl.is
Fram kemur í nýrri skýrslu Efnahags- og framfarastofnunarinnar um efnahagshorfur í heiminum og einstökum aðildarríkjum að til standi að leggja sérstakan „gestaskatt“ á erlenda ferðamenn á Íslandi.
Ekki er nánar greint frá tilhögun hans eða hvaða heimildir eru fyrir því, en ríkisstjórnin hefur fyrir sitt leyti boðað gjaldtöku með aðgangsstýringu að náttúruperlum landsins í huga. Það hefur ekki verið nánar útfært, en Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra sagði fyrir skömmu að slíkra hugmynda væri að vænta með mótun atvinnustefnu sem kynna á í haust. Þar undir er einnig auðlindastefna, sem einnig var boðuð í stjórnarsáttmála.
OECD telur það auka sjálfbæra nýtingu náttúruauðlinda.
Í skýrslu OECD er varað við því að alþjóðlegar viðskiptaerjur kunni að draga úr vexti ferðaþjónustu í landinu, en ekki vikið að áhrifum aukinnar skattheimtu í greininni.
Hins vegar er þar mælt með að ferðaþjónustan borgi virðisaukaskatt til jafns við aðrar atvinnugreinar, sem talið er að muni bæta samkeppnisstöðu þeirra. » 4