Rússar og Úkraínumenn hófu í gær ný skipti á stríðsföngum, en þau voru helsta niðurstaða friðarviðræðna ríkjanna í Istanbúl um helgina, sem annars skiluðu litlum árangri. Volodimír Selenskí Úkraínuforseti staðfesti í gær að fangaskiptin væru hafin, og að þau myndu fara fram í nokkrum þrepum
Rússar og Úkraínumenn hófu í gær ný skipti á stríðsföngum, en þau voru helsta niðurstaða friðarviðræðna ríkjanna í Istanbúl um helgina, sem annars skiluðu litlum árangri.
Volodimír Selenskí Úkraínuforseti staðfesti í gær að fangaskiptin væru hafin, og að þau myndu fara fram í nokkrum þrepum. Hvorki Rússar né Úkraínumenn gáfu upp í gær hversu mörgum föngum hefði verið sleppt né heldur hversu mörgum yrði sleppt í heildina. Selenskí sagði hins vegar að aðaláherslan í gær hefði verið lögð á að láta lausa særða hermenn og þá sem væru undir 25 ára aldri.