Líf og fjör var í Fjölskyldu- og húsdýragarðinum í gær á öðrum degi hvítasunnu. Sólin skein og veðrið lék við gesti sem sjálfir léku sér í hinum ýmsu tækjum og skoðuðu þau dýr sem finna má í garðinum.
Nóg var um að vera en menningarsendiherrar Reykjavíkur stóðu fyrir dagskrá undir yfirskriftinni Menningargarðurinn og var aðgangur ókeypis af því tilefni. Meðal annars gátu gestir garðsins smakkað fjölbreytta rétti frá ýmsum heimshornum, skoðað handverk og myndlist frá fjarlægum löndum og hlýtt á fjölbreytt tónlistaratriði.
Óhætt er að segja að stundum þurfi ekki að leita lengra en í Laugardalinn til að kynnast nýjum og spennandi menningarheimum.