Sigurður Bogi Sævarsson
sbs@mbl.is
Hjá Icelandair er nú – jafnhliða öðru – vaxandi þungi settur í markaðssetningu og ferðir til Grænlands og Færeyja. Í síðustu viku byrjaði félagið Grænlandsflug á Boeing 737 MAX 8, en þar var fyrir nokkrum misserum tekin í notkun ný og stór braut sem gerir þotuflug þangað mögulegt. Með starfsemi þar er Air Greenland auk þess sem SAS og bandaríska félagið United Airlines munu hefja flug þangað í sumar. Icelandair hefur lengi flogið til og frá Nuuk á 37 sæta Dash 8 Q200, en nú flýgur félagið þangað á 160 sæta Boeing 737 MAX-8 vél.
„Grænland er okkur afar mikilvægur markaður, en þar eru aðstæður í flugi nú að breytast mjög hratt og því munum við að sjálfsögðu fylgjast með,“ segir Tómas Ingason, framkvæmdastjóri tekju-, þjónustu- og markaðssviðs hjá Icelandair.
Innviðauppbygging á Grænlandi er mikilvæg
Á Dash 8 Q200 flaug Icelandair fimm sinnum í viku til og frá Nuuk, en á Max 8 nú eru ferðirnar tvær í viku. Færri ferðir en verulega meira sætaframboð og slíkt er hagræði. Árlega koma um 130 þúsund ferðamenn til Grænlands með flugi og skemmtiferðaskipum. Talið er að sá fjöldi muni aukast til muna á næstu árum. Auk Nuuk flýgur Icelandair til Ilulisat, Narsarsuaq og Kulusuk á Grænandi.
„Hingað til hefur millilandaflug til frá Grænlandi, utan tengingarinnar við Ísland, að mestu verið í gegnum Syðri-Straumsfjörð. Með vellinum nýja í Nuuk er veruleikinn orðinn allt annar, svo sem að þar geti orðið til tengingar í alþjóðaflugi. Þessi þróun er áhugaverð og eins að senn verða teknir í notkun nýir flugvelli bæði í Ilulissat og Qaqortoq sem eru á Suður-Grænlandi. Á þessa staði eins og fleiri verður hentugt að sækja frá tengimiðstöð okkar í Keflavík,“ segir Tómas.
Hann segir innviðauppbyggingu á Grænlandi vera mikilvæga svo flug og ferðaþjónusta þar komist vel á legg. Byggja þurfi hótel þar í landi, bæta aðgengi að áhugaverðum viðkomustöðum og slíkt, samanber hvað gert hefur verið á Íslandi á síðustu árum. Einnig í Færeyjum þangað sem Icelandair hóf flug á síðasta ári. Félög þau sem mynda Icelandair í dag sinntu Færeyjaflugi í áratugi, sem svo lagðist af upp úr aldamótum en nú hefur þráðurinn aftur verið tekinn upp – sem fyrr segir.
„Færeyjar eru að koma vel út í okkar starfsemi,“ segir Tómas. Þangað flýgur Icelandair sex sinnum í viku og frá Keflavík er farið um kl. 11 á morgnana. Þegar ferðir hófust í fyrra var áætlunin fyrr á morgnana og þá gerðist oft að þoka lá yfir flugvellinum í Vogum þegar kom að lendingu. Vélin frá Íslandi fór því stundum ekkert í loftið, ferðinni var seinkað eða snúið var frá. Með flugi 2-3 klukkustundum síðar gengur betur.
„Farþegafjöldi í Færeyjafluginu stendur alveg undir væntingum og eins sú markaðsáætlun sem við settum upp. Hún var sú að kynna Færeyjar sérstaklega fyrir Bandaríkjamönnum, til dæmis fólki sem kannski hefði komið einu sinni til tvisvar til Íslands og vildi áfram sækja á framandi ferðamannastaði á norðurslóðum. Þar koma Færeyjar sterkar inn.“
Fjórir nýir áfangastaðir
Í vor hefur Icelandair flug til tveggja nýrra áfangastaða, það er Gautaborgar í Svíþjóð og Nashville sem er höfuðborg Tennessee-ríkis. Þetta er upptaktur að öðru og meira; samaber að í haust setur félagið á áætlun flug til fjögurra nýrra áfangastaða. Skal þar fyrst nefna Miami í Flórída í Bandaríkjunum og Malaga á Spáni. Flug þangað er hluti af þeirri stefnumótun Icelandair að fljúga til vinsælla sólarstaða yfir vetrartímann í því skyni að draga úr árstíðasveiflum í rekstri félagsins. Þriðji nýi staðurinn sem flogið verður til er Edinborg í Skotlandi; lítil borg í aðeins um tveggja stunda fjarlægð frá Íslandi. Fyrr á tíð naut borgin mikilla vinsælda meðal Íslendinga sem gjarna fóru þangað til innkaupa.
Fjórði nýi áfangastaður Icelandair í haust er Istanbúl í Tyrklandi. Flogið verður til borgarinnar tvisvar í viku frá 5. september og er flugtími hálf sjötta klukkustund. Samhliða flugi til Istanbúl styrkir Icelandair samstarf sitt við Turkish Airlines. Fá félög í heiminum fljúga til jafn margra áfangastaða sem hið tyrkneska og er beint flug Icelandair til Istanbúl sérstaklega tímasett til að tengja vel við flug Turkish Airlines áfram til Asíu og Mið-Austurlanda. Þegar samstarfið hefur öðlast fullt gildi verður hægt að bjóða upp á hentugar tengingar og allt að átta klukkutímum styttri ferðatíma til og frá fjölda áfangastaða í austri.
Svipaður að inntaki er samningur sá sem Icelandair gerði í síðustu viku við indverska flugfélagið Air India um sammerkt flug. Með samningnum munu opnast öflugar og þægilegar tengingar á milli Íslands og Indlands um sameiginlega áfangastaði félaganna í Evrópu sem eru alls fimmtán. Þannig verður til að mynda hægt að ferðast á einni bókun frá Íslandi til Nýju-Delí með tengingu í Amsterdam, París, Kaupmannahöfn, Frankfurt eða London.
70 brottfarir frá Keflavík á dag
„Sumarið fram undan hjá Icelandair er spennandi,“ segir Tómas. „Í flotanum nú verðum við með alls 42 flugvélar, sama fjölda og í fyrra, en sætaframboðið eykst þrátt fyrir það lítillega milli ára yfir sumartímann og um 8-9% fyrir árið í heild. Þar kemur til að við erum að taka fjórar Boeing 757-vélar úr rekstri en í staðinn eru komnar jafn margar Airbus A321LR sem taka 187 farþega. Að vera með Airbus er mikil breyting í okkar starfsemi, en ferðir á degi hverjum út frá Keflavíkurflugvelli verða milli 60-70,“ segir Tómas að síðustu.
Hver er hann?
Tómas Ingason er fæddur árið 1978 og hefur verið einn af helstu stjórnendum Icelandair frá 2019. Hann stýrir tekju-, þjónustu- og markaðssviði félagsins – og hefur verið lykilmaður við þróun leiðakerfis félagsins.
Tómas er með MBA-gráðu frá Boston og með meistaragráðu frá MIT í sömu borg með áherslu á flugrekstur og aðfangakeðjur, auk þess að hafa BS-gráðu í iðnaðarverkfræði.