Ísraelsmenn komu í gær í veg fyrir að seglskúta Gretu Thunberg og ellefu annarra aðgerðasinna kæmist í land á Gasaströndinni. Madleen-skútan lagði af stað frá Ítalíu með hjálpargögn 1. júní en skv. tilkynningu frá Freedom Flotilla…
Ísraelsmenn komu í gær í veg fyrir að seglskúta Gretu Thunberg og ellefu annarra aðgerðasinna kæmist í land á Gasaströndinni. Madleen-skútan lagði af stað frá Ítalíu með hjálpargögn 1. júní en skv. tilkynningu frá Freedom Flotilla Coalition-samtökunum „stöðvuðu ísraelskar hersveitir skútuna með valdi“ aðfaranótt mánudags.
„Ef þú sérð þetta myndskeið þá höfum við verið stöðvuð og okkur rænt á alþjóðlegu hafsvæði,“ sagði Thunberg í myndskeiði sem samtökin birtu. Ísraelsher hefur gefið út að aðgerðasinnarnir verði sendir aftur til heimalanda sinna með flugi.