Andrés Magnússon
andres@mbl.is
Samtök atvinnulífsins (SA) vara við því að fyrirhugaðar breytingar stjórnvalda á örorkulífeyriskerfinu geti haft alvarleg áhrif á lífeyrissjóði og leitt til skerðingar á ellilífeyri, einkum fyrir verkafólk. Þetta kemur fram í umsögn samtakanna um frumvarp til breytinga á lögum um lífeyrissjóði og skyldutryggingu lífeyrisréttinda.
Í umsögninni gagnrýna SA tvö atriði sérstaklega. Annars vegar áform ríkisstjórnarinnar um að fella niður svokallað jöfnunarframlag til lífeyrissjóða frá árinu 2026, og hins vegar ákvæði sem banni lífeyrissjóðum að taka tillit til greiðslna frá Tryggingastofnun ríkisins (TR), að ákvörðun um örorkulífeyri sé tekjutengd.
Samkvæmt fjármálaáætlun 2026-2030 virðist ákveðið að fella niður jöfnunarframlagið frá og með árinu 2026. SA segja það ganga í berhögg við samkomulag við aðila vinnumarkaðarins, sem lögfest var 2006.
Misjöfn örorkubyrði sjóða
Samkomulagið má rekja til þess að félagar í lífeyrissjóðum eiga rétt á örorkulífeyri úr þeim ef þeir verða fyrir 50% starfsorkutapi eða meira, en hann miðast við fyrri tekjur.
Mjög er hins vegar misjafnt eftir sjóðum (og stéttum) hve mikið þeir greiða í örorkulífeyri, það er á bilinu 11-28% af greiddum lífeyri. Því var samið um að ríkið myndi greiða fyrir jöfnun á örorkubyrði milli lífeyrissjóða með framlagi af tryggingagjaldi.
SA segja að niðurfelling jöfnunarframlagsins muni raska jafnvægi milli sjóða og setja greiðslugetu þeirra í uppnám. Bann við tekjutengingu muni auka enn frekar á vandann, þar sem eina leiðin sem eftir standi verði að skerða ellilífeyri.
Í umsögninni er fullyrt að stjórnvöld hyggist með þessum hætti fjármagna hækkun bóta til öryrkja með lífeyrissparnaði verkafólks. SA vara einnig við því að breytingarnar kunni að draga úr hvata fólks með skerta starfsgetu til þátttöku á vinnumarkaði.
„Áunnin lífeyrisréttindi njóta eignarréttarverndar stjórnarskrárinnar og mannréttindasáttmála Evrópu,“ segir í umsögn SA.
„Pólitískar ákvarðanir um bætt kjör öryrkja eiga ekki að vera fjármagnaðar með aðför að undirstöðum íslensks samfélags.“
Afstaða SA
Afnám jöfnunarframlags veldur tjóni á lífeyriskerfinu
Breytingin mun koma mishart niður á lífeyrissjóðum
Bann við tekjutengingu við greiðslur frá TR geri illt verra
Skerða þurfi ellilífeyrisgreiðslur til að eiga fyrir auknum örorkugreiðslum
Breytingin komi harðast niður á ellilífeyri verkafólks
Ríkisstjórnin vilji þannig láta lífeyrissjóði fjármagna hækkun örorkubóta