Sigrún Aspelund fæddist í Reykjavík 11. apríl 1946. Hún lést 3. maí 2025.
Foreldrar hennar voru Júlíana Guðmundsdóttir Aspelund, f. 11.12. 1913, d. 26.12. 2006 og Georg Pétur Aspelund járnsmíðameistari, f. 15.2. 1915, d. 23.3. 1972. Sigrún átti fjögur systkini, þau eru Axel, f.1935, d. 2024, Edda, f. 1939, Erna, f. 1949, d. 2019 og Elín, f. 1955.
Sigrún giftist árið 1966 Ríkarði Mássyni, f. 29.1. 1943, d. 3.4. 2017, þau skildu. Sonur Sigrúnar og Ríkarðs er Ríkarður Már, f. 18.6. 1965, eiginkona hans er Lilja Þorsteinsdóttir, f. 27.4. 1969. Börn þeirra eru: 1) Ásthildur Ólöf, f. 2.3. 1991, eiginmaður Andri Már Magnússon, f. 26.12. 1987, börn þeirra eru Ísabella Manda, f. 2017, Frosti Már, f. 2020 og Aron Emil, f. 2020. 2) Ragnar Már, f. 10.2. 2000, sambýliskona Sara Júlíusdóttir, f. 24.1. 2002, sonur þeirra er Emil Mói, f. 2022.
Seinni eiginmaður Sigrúnar var Hrafnkell Helgason, f. 28.3. 1928, d. 19.10. 2010, þau gengu í hjónaband 1997, fyrir átti Hrafnkell þrjú börn, Helga, f. 1952, d. 2018, Stellu Stefaníu, f.1955 og Hrefnu Lovísu, f. 1964.
Sigrún helgaði sig félagsstörfum, sat í hinum ýmsu stjórnum og lét til sín taka í pólitík.
Útför Sigrúnar fer fram frá Guðríðarkirkju í dag, 10. júní 2025, og hefst athöfnin kl. 15.
Elsku fallega amma Sigrún, eitt orð er efst í huga og það er þakklæti. Þú stóðst alltaf þétt við bakið á okkur systkinum og hvattir okkur áfram í lífinu, alveg sama hvað við tókum okkur fyrir hendur.
Þú varst svo sannarlega hafsjór af fróðleik, einstaklega ráðagóð, vildir öllum vel og máttir ekkert aumt sjá, alltaf til í að hjálpa. Ákveðin kona með mikinn sannfæringarmátt og þá sérstaklega þegar kom að pólitík enda kona með sterkar skoðanir og leyndir þeim ekki. Það var yfirleitt stutt í hlátur og fíflagang og húmorinn allsráðandi en gast orðið mjög alvarleg á nokkrum sekúndum ef þess þurfti.
Þær eru margar minningarnar, ferðalög erlendis og um Ísland, Vífilsstaðir, Móaflötin og svo Langanesið fallega þar sem þú gróðursettir heldur betur hvert tréð á fætur öðru og skrásettir hvert eitt og einasta aftast í gestabókina. Þær voru einnig ófáar ferðirnar á Benzanum í hin ýmsu ævintýri og enduðum við oftar en ekki á McDonalds þrátt fyrir að þú eldaðir heimsins besta mat og riggaðir upp stórum veislum á núll einni.
Þær voru margar gæðastundirnar sem þú áttir með langömmubörnunum, sólargeislununum þínum eins og þú kallaðir þau og rukkuðu þau nánast daglega um að fá að fara til ömmu Sigrúnar enda leyndir þú ekki ást þinni á þeim og fannst ekki leiðinlegt að fá aðeins að spilla þeim, gefa þeim ís og nammi og syngja með þeim eða segja sögur og voru þar ævintýri H.C. Andersen í miklu uppáhaldi.
Elsku amma, missir okkar er mikill en við lofum að minnast þín og halda minningu þinni á lofti um ókomna tíð. Takk fyrir allt, þangað til næst elsku darlingur, eins og þú sagðir svo oft. Brot úr laginu okkar fær að fylgja og orðin hans Frosta Más til þín, love you baby darling.
Þín ömmubörn.
Ástarljóð til þín ég yrki í sandinn,
aldan hún stafina þvær.
Fortíðin geymist í fjörunnar sandi
fegurstu vonir, drauma og þrár.
Ósamið ljóð mitt það lifnaði seinna
og líka mín ógrátin tár.
Háflóðið eyðir, því allt mun það hverfa,
orðvana sandurinn grár.
Alltaf jafnt hýr eins og mynd þín í muna
mér verður um ókomin ár
fortíðin geymist í fjörunnar sandi
fegurstu draumar og þrár.
Ásthildur Ólöf
og Ragnar Már.
„Traustur vinur er verðmætari öllu, á engan kvarða fæst gildi hans metið.“ Þessa tilvitnun í Síraksbók k. 6 er að finna sem áletrun á myndskreyttri þýskri útgáfu af Saltaranum og myndirnar eftir snillinginn Marc Chagall. Áletrunina skrifar Sigrún Aspelund sinni fögru rithönd enda bókin fallega gjöf hennar til mín árið 2015. Orðin úr Síraksbók eiga afar vel við Sigrúnu sjálfa eins og hún reyndist okkur hjónum.
Bókin var í keypt í klaustrinu sem Halldór Laxness dvaldi í forðum, Clairvaux í Luxemborg. Við hjón vorum á ferð með okkar kæru vinkonu Sigrúnu í Saarburg í Þýskalandi og fórum þaðan ferðir til Lúxemborgar og Belgíu. Sigrún hafði á árum áður verið fararstjóri á þeim slóðum. Í einni slíkri ferð hafði hún kynnst Hrafnkatli Helgasyni lækni, síðari manni sínum, sem var látinn þegar þarna var komið.
Sigrún var glaðvær og skemmtileg, ræðin og hafði skoðanir á mönnum og málefnum. Þær Guðrún höfðu upphaflega kynnst gegnum pólitík á vettvangi Framsóknarflokksins, náðu strax vel saman og báðar sátum þær um skeið í bæjarstjórn, Sigrún í Garðabæ ásamt Hjördísi tengdadóttur okkar, en Guðrún á Seltjarnarnesi. Hrafnkell varð einnig góður vinur okkar meðan hann lifði og minnisstæð er afar skemmtileg og fróðleg ferð með honum á Sturlunguslóðir, en fáir kunnu þá bók betur en hann. Þá urðu þau hjón beinlínis áhrifavaldar í lífi okkar með óvenjulegum hætti. Sigrún hringdi er við vorum í Stokkhólmi í febrúar 2009. Spurði hvort við gætum gert þeim hjónum greiða. Farið á verkstæði á Drottningargötu 77 og nálgast þar tréstyttu eina fyrir Hrafnkel. Það gerðum við með ánægju og um leið varð til ,della’ mín, sú að safna útskornum tréstyttum af þekktum persónum sem eru nú á annað hundrað hér á bæ og setja sannarlega svip á heimilið.
Aðventuferðir Guðrúnar og Sigrúnar til Frankfurt voru fastur liður í heilan áratug en þá voru karlar ekki með, en oft fleiri konur úr fjölskyldunum, enda tilgangurinn að versla! En saman fórum við þrjú líka í minnisstæða ferð til Verona á Ítalíu. Sigrún þægilegur ferðafélagi eins og jafnan, kunni að njóta lífsins og fundvís á góða veitingastaði. Fórum meira að segja saman á fótboltaleik, og hlógu vinkonurnar dátt er þær heyrðu að miðinn fyrir konur væru á hálfvirði!
Sigrún hefur glímt við veikindi síðustu árin og urðu tengslin þá meiri gegnum síma en hún sjálfri sér lík, hlý og vinveitt. Ávarpaði mig alltaf sem „Gunnlaugur minn.“ Og löngum símtölum við Guðrúnu sleit hún alltaf með sömu orðum: „Heyrumst svo fljótlega betur.“
Nú heyrumst við ekki betur en búum að kærum minningum um Sigrúnu. Það var gæfa okkar að kynnast henni vel og eignast að traustum vini. Guð blessi minningu Sigrúnar Aspelund.
Guðrún H. Brynleifsdóttir, Gunnlaugur A. Jónsson.
Nú kveðjum við Sigrúnu Aspelund – þá einstöku konu sem lagði svo sannarlega sitt af mörkum til samfélagsins sem og Framsóknarflokksins á meðan hún starfaði þar. Við kynntumst í starfi Framsóknar og reyndist hún mér ætíð vel á þeim vettvangi og var einn minn ötulasti stuðningsmaður.
Sigrún var um árabil lykilmanneskja í innra starfi Framsóknarflokksins, sérstaklega í Suðvesturkjördæmi, og vann jafnframt á skrifstofu flokksins. Sérstaklega vil ég nefna þann kraft og gleði sem hún færði inn í starf Framsóknar í Suðvestur. Hún var hrókur alls fagnaðar og kom oftar en ekki að því að skipuleggja viðburði í kjördæminu. Sérstaklega minnist ég ferðanna sem við skipulögðum, þar sem félagar í Framsókn fóru í dagsferðir út fyrir bæjarmörkin og heimsóttu félaga og samherja í öðrum héruðum. Ógleymanlegar ferðir sem einkenndust af samheldni og gleði.
Það einkenndi hana að vera alltaf tilbúin að rétta hjálparhönd. Hún var einstaklega greiðvikin, vildi allt fyrir alla gera og var hamhleypa til verka þegar á þurfti að halda. Hlýja hennar, góðmennska og ósérhlífni var áberandi í öllu sem hún tók sér fyrir hendur. Hún var traustur samverkamaður í hvívetna og það var einfaldlega gott að vera í kringum hana.
Þó að leiðir okkar hafi skilið í pólitíkinni síðustu árin, héldust samskiptin ætíð góð. Sigrún sýndi samferðafólki sínu ætíð virðingu, hlýju og nærgætni – það var hennar eðli.
Að leiðarlokum vil ég þakka áralanga vináttu og fyrir fórnfúst og dýrmætt starf innan raða Framsóknarflokksins.
Blessuð sé minning Sigrúnar Aspelund.
Birkir Jón Jónsson, form. Kjördæmissambands Framsóknar í Suðvesturkjördæmi.
Góð kona er gengin. Fregnin um að Sigrún okkar hefði látist 3. maí síðastliðinn kom okkur Inner Wheel-félögum hennar á óvart. Hún hafði að vísu átt við veikindi að stríða og hafði ekki sótt fundi með okkur að undanförnu en hún var dugleg að fylgjast með okkur og hafði samband og sendi kveðjur til Inner Wheel-félaganna.
Og hún var stofnfélagi í IW Görðum. Hún gekk til liðs við okkur í Inner Wheel Görðum árið 1995 þegar félagið var formlega stofnað og var góður liðsmaður í glaðværum hópi kvenna sem starfa í félaginu okkar. Sigrún var hrókur alls fagnaðar og það fylgdi henni glaðværð og hlátur hvert sem hún fór. Hún var umdæmisstjóri Inner Wheel á Íslandi árin 2013-2014 og forseti Inner Wheel Görðum 2008-2009 og 2016-2017. Undir merkjum Inner Wheel höfum við átt skemmtilegt samstarf og vináttu sem ber að þakka. Saman eigum við ljúfar minningar um ánægjuríka samveru og vináttu sem ornar okkur á kveðjustund.
Minningin um ljúfan félaga okkar í Inner Wheel Görðum varir að eilífu. Fjölskyldunni allri sendum við okkar dýpstu samúðarkveðjur.
Vel sé þér, vinur,
þótt vikirðu skjótt
Frónbúum frá
í fegri heima.
Ljós var leið þín
og lífsfögnuður,
æðra, eilífan
þú öðlast nú.
(Jónas Hallgrímsson)
Góður Guð varðveiti Sigrúnu Aspelund. Fyrir hönd Félaga í Inner Wheel Görðum,
Laufey Jóhannsdóttir forseti.
Nú þegar okkar kæri félagi í Miðflokknum og fráfarandi formaður og heiðursfélagi í Miðflokksfélagi Garðabæjar, Sigrún Aspelund, er fallin frá er margs að minnast.
Sigrúnu var pólitík í blóð borinn og naut hún sín afar vel í flokksstarfinu í Miðflokknum þar sem hún gegndi mörgum trúnaðarstörfum.
Sigrún var bráðskörp og naut mikillar virðingar innan sem utan Miðflokksins. Við sem sátum með henni í stjórn Miðflokksfélagsins í Garðabæ nutum þess að starfa með henni. Þó að líkaminn hafi ekki alltaf verið tilbúinn að fylgja kappi hennar og elju síðustu árin, þá notaði hún bara símann þess meir. Enda voru þau ansi mörg símtölin þar sem við leituðum ráða hjá Sigrúnu um hin ýmsu mál. Hún gat stundum stokkið upp á nef sér og hvæst aðeins á okkur þegar henni þótti ekki vel að verki staðið í einhverjum málum. Hún var eins og mamma sem passar upp á ungana sína og kom til dyranna eins og hún var klædd.
Sigrún var jafnan fengin í það vandasama hlutverk ásamt lykilmönnum að raða mönnum í efstu sæti framboðslista eða að velja menn og konur í leiðtogahlutverk í Miðflokknum.
Þar var hún í essinu sínu og við erum ansi mörg sem höfum fyrir hennar tilstuðlan gengið til liðs við Miðflokkinn og tekið sæti á framboðslistum og gegnt störfum í stjórnum og ráðum.
Sigrún Aspelund var einstök manneskja og skemmtileg, hún mun lifa í minningu okkar um ókomna tíð.
Miðflokksfélag Garðabæjar sendir fjölskyldu Sigrúnar innilegar samúðarkveðjur.
Lárus Guðmundsson, Nanna Margrét Gunnlaugsdóttir, Snorri Marteinsson, Haraldur Gíslason.