Elínborg Una Einarsdóttir
elinborg@mbl.is
Nú þegar sumarið er gengið í garð lifnar náttúran við og má þá merkja ýmsar breytingar á henni frá fyrri árum. Stangveiðileiðsögumaður í Húnavatnssýslu hefur tekið eftir miklu hruni í kríustofni á svæðinu en segist hins vegar aldrei hafa séð jafn mikið af rjúpu.
Þorsteinn Hafþórsson er fæddur og uppalinn á Blönduósi og hefur fylgst vel með náttúrunni og fuglalífi í sveitinni alla tíð. Í dag starfar hann sem stangveiðileiðsögumaður í nokkrum helstu laxveiðiám landsins auk þess að vera mikill skotveiðimaður.
Fuglaflensan sökudólgur
„Mér finnst vera rosalegt hrun hjá kríu, hún er nánast bara horfin, og það er mikið minna af spóa og heiðlóu en hefur verið. Ég hef hins vegar aldrei séð eins mikið af rjúpu og núna og svo er líka mikið af flækingsfuglum sem ég hef ekki séð áður, eins og landsvala, skógardúfa og gráþröstur,“ segir Þorsteinn í samtali við Morgunblaðið, spurður hvaða breytingar í fuglalífi hann hafi helst orðið var við það sem af er sumri.
En hvað kann að valda þessari fækkun á kríu, spóa og heiðlóu? Þorsteinn telur líklegast að fuglaflensan spili þar inn í, að minnsta kosti í tilfelli lóunnar og spóans. Það væri ekki í fyrsta skipti sem flensan hefði áhrif á vistkerfið fyrir norðan.
„Fálkastofninn hrundi út af flensunni, okkar íslenski. Það sést varla fálki. Fyrir þremur árum leið varla dagur án þess að maður sæi fálka en núna hef ég ekki séð fálka frá áramótum,“ segir Þorsteinn og bætir við að það skýri líklegast mikla fjölgun á rjúpu á svæðinu. „Hún hefur fengið frið.“
Þá segir Þorsteinn önnur jákvæð teikn vera á lofti: „Þegar fuglaflensan kom á sínum tíma hrundi súlan en hún er að koma til baka. Það er að verða fjölgun hjá henni og ritu.“
Lundastofninn á svæðinu hefur sömuleiðis verið í miklum og áberandi vexti segir Þorsteinn. „Hérna er stöðug aukning og æðarvarpsbændur eru miskátir að sjá þennan nýja gest svona mikið því hann tekur yfir hreiðrin.“