— AFP/Ringu Chiu
Mótmæli gegn innflytjendastefnu Bandaríkjastjórnar héldu áfram í Los Angeles í gær, fjórða daginn í röð. Óeirðir brutust út á sunnudaginn, og ákvað Trump Bandaríkjaforseti í gærkvöldi að kalla út 700 landgönguliða til þess að styðja við þá 2.000…

Mótmæli gegn innflytjendastefnu Bandaríkjastjórnar héldu áfram í Los Angeles í gær, fjórða daginn í röð.

Óeirðir brutust út á sunnudaginn, og ákvað Trump Bandaríkjaforseti í gærkvöldi að kalla út 700 landgönguliða til þess að styðja við þá 2.000 þjóðvarðliða sem hann hafði áður kallað út á laugardaginn.

Gavin Newsom, ríkisstjóri í Kaliforníuríki, fordæmdi ákvörðun Trumps og sagði að ekki ætti að kalla landgönguliða út á bandarískri grund til þess að uppfylla „sturlaða drauma“ forsetans. Borgaryfirvöld í Los Angeles brugðust við ákvörðun forsetans með því að lýsa mótmælin ólögleg og skoruðu þau á mótmælendur að snúa aftur til síns heima. Mikil óvissa ríkti í borginni um framhaldið í gær þegar Morgunblaðið fór í prentun. » 14